Öndunarvandamál á M20B25 í E30

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Öndunarvandamál á M20B25 í E30

Postby Daníel » Mon 03. Aug 2009 22:07

Sælir félagar

Ég var aðeins að dunda í bílnum um helgina og varð var við eitt vandamál. Loftinntakið og soggreinin voru löðrandi í olíu. Bíllinn gengur ekki hægaganginn almennilega. Ég þreif upp hægagangsventilinn og hreinsaði olíuna úr öllum slöngum en það breytti engu. En ég tók eftir að slanga sem fer að bremsukútnum leggst saman, sem varla getur verið eðlilegt.

Svo spurningin er, tengist þessi slanga eitthvað því að bíllinn gengur illa hægagang og að olía sé að komast með öndun inn í loftinntak og er þá slangan orsök eða afleiðing vandans?

Slangan sést á meðfylgjandi mynd, fer frá einstefnuventlinum (hvíta stykkið) og liggur undir forðabúrið og í svarta tengið á bremsukútnum sem sést ofarlega á myndinni.

Image
Danni
Mercedes Benz Viano 2.2cdi 2003 "Langferðabíllinn"
Audi A6 1.8 1999 "garmurinn"
Enginn BMW
User avatar
Daníel
Getawaybílstjóri
 
Posts: 795
Joined: Fri 23. Sep 2005 14:08
Location: Höfuðborgarsvæðið

Re: Öndunarvandamál á M20B25 í E30

Postby Daníel » Tue 04. Aug 2009 11:26

Slangan sem leggst saman og er á myndinni í póstinum að ofan er númer 5 á þessari mynd:
Image

Öndunarslangan af ventlalokinu (númer 3 á þessari mynd) er léleg að sjá og ætla ég að skipta um hana, getur verið að hún tengist þessu máli eitthvað?
Image
Danni
Mercedes Benz Viano 2.2cdi 2003 "Langferðabíllinn"
Audi A6 1.8 1999 "garmurinn"
Enginn BMW
User avatar
Daníel
Getawaybílstjóri
 
Posts: 795
Joined: Fri 23. Sep 2005 14:08
Location: Höfuðborgarsvæðið


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests