Sælir,
ég er með 318i e46 2002 facelift bíl með n42b20 vélina (2L).
Ekinn 83 þús.
Fór með hann í smurningu í dag og það var skipt um olíu og allt þetta, allt í góðu. Keyri heim, ekkert vesen og svo keyri ég um kvöldið og þá finnst mér lyktin innan í bílnum frekar skrýtin og hún fer ekki þó ég opni rúðuna né neitt. Stoppa síðan og þá er þessi lykt sem er svona blanda af einhverri olíu+hita+brunalykt og ég opna húddið og það er einhver reykur upp úr svæðinu sem sést á mynd númer 3.
Vélin löðrandi í olíu í kringum Castrol tappann þar sem olían er sett í og á stæðinu eru þrír pínulitlir pollar. Sést best á myndunum hvernig vélin lítur út.
Ég sá þegar þeir lokuðu húddinu eftir smurninguna og það var allt tandurhreint í vélinni. Hvað er málið?




(sést að það hefur slest upp á húddið)

