Page 1 of 1
Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Tue 21. Jul 2009 20:09
by Zed III
Ég er með kapútt mótor í loftkælingarviftunni minni. Mótorinn fer ekki í gang við það að setja beinan straum á hann en hann hefur þó hrokkið í gang í smá tíma áður en ég reif hann úr, en það var ekki consistent og hann var nánast alltaf dauður.
Er einhvert fyrirtæki sem gerir við svona eða gerir maður ráð fyrir að þetta sé ónýtt og kaupir nýtt ?
Edit, þetta er mótirinn nr 11:

Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Tue 21. Jul 2009 23:19
by Axel Jóhann
Prófaðu rafstillingu
www.rafstilling.is gaurinn þar ætti að gera reddað þessu á ´góðu verði.
Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Wed 22. Jul 2009 08:09
by Zed III
nice, testa það á eftir.
Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Wed 22. Jul 2009 09:28
by Zed III
no good, það er enginn að gera við svona hluti

Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Thu 23. Jul 2009 08:15
by Hannsi
Hehe Veit ekki hvort þetta sé tilviljun eða hvað en ég á þetta til

Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Thu 23. Jul 2009 09:25
by Zed III
Það eru engar tilviljanir, þetta eru örlögin !!
þú átt pm
Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Sun 26. Jul 2009 20:43
by Zed III
humm, ég fékk aðra viftu en hún er heldur ekki að virka.
Það er straumur á plöggið sem viftan stingst í þ.a. ekki er um að ræða rafmagnsleysi. Það eru 2 pólar á viftunnin fyrir utan jörð, um 14 volt á öðrum og 3-4 á hinum (ég gerir ráð fyrir að þetta sé fyrir hraðan snúning og hægan snúning á viftunni, en er þó ekki viss.
Mér finnst mjög einkennilegt að ég sé með 2 viftur sem báðar eru dauðar (þó þetta sé þekktur galli). Er einhver hérna með e39 sem er '99 eða nýrri og væri til í að plögga þessum viftum í samband á bílnum hjá sér til að athuga hvort þær virki (það er mjög auðvelt að komast að plögginu, ekkert að opna eða slíkt) ?
Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Sun 26. Jul 2009 21:21
by Axel Jóhann
búinn að prófa setja beint rafmagn af rafgeymi á vifturnar?
Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Sun 26. Jul 2009 21:54
by Zed III
jebb, búinn að beintengja báðar vifturnar við 12v rafgeymi. Þó bara jörð og annan af hinum pólnum í einu, var að spá hvort allir þyftu að vera tengdir.
Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Mon 27. Jul 2009 00:22
by Axel Jóhann
Reyndu að finna rafmagns diagram af þessu og þá sérðu hvernig straumurinn á að tengjast inná þetta.
Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Mon 27. Jul 2009 01:48
by Danni
Kíkja í heimsókn aftur?

Re: Er möguleiki á að gera við viftumótora ?

Posted:
Mon 27. Jul 2009 09:24
by Zed III
Jà veistu, ég held ég verdi að kíkja aftur. Ég fékk viftuna ùr 540 bílnum hjà Hannsa og hann sagði að þetta hafi allt virkað thegar hann reif þetta ùr. spurning hvenær þù vilt taka à móti mér.