Sæl verið þið.
Þannig er nú það að bíllinn varð batteríslaus um daginn og útvarpið læsti sér og vildi fá kóða. Allt í góðu með það, ég hringi þangað þar sem að ég keypti hann og þeir láta mig fá leini númerið og svona þannig að það er komið. Hinsvegar áður en ég næ að pikka það inn fiktar litli bróðir minn í bílnum, pikkar inn vitlausar tölur of oft og læsir útvarpinu mínu... þannig að núna kemur bara "Wait". Það er semsagt læst.
Þetta er 316 e36 98 módel. Veit einhver hvernig ég get aflæst því þannig ad ég geti pikkað inn kóðan að nýju? Er þetta eitthvað vesen?

