Sælir, ég var að vonast til að þið gætuð aðstoðað mig aðeins.
Málið er að olíuljósið í mælaborðinu slokknaði ekki eftir að bíllinn var gangsettur (hef ekkert sett í gang eftir það).
Virðist vera næg olía á mótornum en það sem ég var að láta mér detta í hug er að annað hvort er olíudælan að svíkja
mig eða neminn neðst í pönnunni??
Hef ekki viljað setja í gang og ath hvort ljósið fari af við að taka plöggin af nemanum....
Hefur ekki einhver reynslu af þessu dæmi?? Öll ráð vel þegin.
Er reyndar með varahlutabíl sem er með 1600cc mótor (1990), er sama olíudælan í þessum mótorum??

