Bensín á diesel X5 upplýsingar óskast!!!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Bensín á diesel X5 upplýsingar óskast!!!

Postby Saxi » Tue 09. Jun 2009 22:36

Fór fullur tankur af bensíni á 3.0 Diesel X5.

Spurningin er hvernig hægt er að dæla þessu af. Erum búnir að ná 60 lítrum beint af tankinum en ca 33 eftir.

Okkur var sagt að það væri hægt að tengja framhjá hráolíudælu rely-inu þannig að dælan færi í gang og dældi þessu sjálf af sér.

Væri rosalega gott að fá eitthvað vitrænt input í þetta sem fyrst :D

kv.
Egill
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Re: Bensín á diesel X5 upplýsingar óskast!!!

Postby O.Johnson » Wed 10. Jun 2009 01:33

Það er ekki gott fyrir dæluna að fá bensín inn á sig, það er enginn smurningur í bensíni. Frekar að fá bensíndælu og tengja við fæðilínuna fyrir hráolíudæluna og dæla þannig upp úr tanknum.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Re: Bensín á diesel X5 upplýsingar óskast!!!

Postby slapi » Wed 10. Jun 2009 09:49

Síðan er nátturulega hægt að komast ofaní tankinn undir aftursætunum, þá ertu alveg öruggur að allt fari af.
Mæli með að blása úr lögnunum fram og setja nýja hráolíusíu.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Re: Bensín á diesel X5 upplýsingar óskast!!!

Postby Saxi » Wed 10. Jun 2009 14:06

slapi wrote:Síðan er nátturulega hægt að komast ofaní tankinn undir aftursætunum, þá ertu alveg öruggur að allt fari af.
Mæli með að blása úr lögnunum fram og setja nýja hráolíusíu.


Fór í þetta í morgun, ótrúlega lítið mál með fínni dælu sem ég fékk lánaða framan á borvél.

Ný sía, allar lagnir blásnar út og diesel dælt í gegn.

Settir 95,7 lítrar af olíunni dýru á hann og sett í gang. Allt virðist eðlilegt, enginn reykur og fínn gangur.

kv.
Egill
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Re: Bensín á diesel X5 upplýsingar óskast!!!

Postby dabbiso0 » Wed 10. Jun 2009 22:10

VEL GERT, vandinn leystur eins og hjá séntílmönnum
Toyota Rav4 '97 "Special" Seldur :D
e39 530d touring sport 2003 - ///M-(aður) - Seldur :(
dabbiso0
Getawaybílstjóri
 
Posts: 584
Joined: Thu 25. Dec 2008 09:22


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests