Bróðir minn er að spá í svona bíl...Hann er að sjúga falskt loft hvað þýðir það ? hvernig gerir maður við það og er mikið mál að fá dempara að aftan í hann ?
Bmw E36 325i Cabrio Pontiac Firebird Lt1 Ford Mustang 01 Jeep SRT-8 07 (seldur),Bmw E38 750ia
Ef bíllinn er að sjúa "falskt" loft einhvers staðar þá þýðir það að bíllinn er að draga inn loft inn á mótorinn einhvers staðar annars staðar en í gegnum loftsíuna. Þetta getur oft verið afleiðing af rifnum hosum ofl.
Varðandi dempara þá er nú bara best að óska eftir slíku í "Vil kaupa varahluti" hér á spjallinu ef þú villt notað, annars bara að hringja á milli varahlutaverslana og sjá hvað þeir eiga.
það má bæta við að til að vera viss um að bíllin sé að taka inn falskt loft er hægt að sprauta bremsuhreinsi (brakes and part cleaner, til í verslunum N1 og á fleiri stöðum) yfir hosurnar og manifoldið meðan bíllin er í gangi og hlusta eftir hvort gangurinn breytist eitthvað í stutta stund.
Benedikt Guðmunds. 615-2630 The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01