bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=37762
Page 1 of 1

Author:  skaripuki [ Thu 04. Jun 2009 01:30 ]
Post subject:  turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

heyrðu það er einhver turn eða hylki sem er fyrir framan dempara turninn hægra megin ef maður lýtur undir húddið á bílnum, hvað er þetta ? það liggja 2 slöngur frá honum undir vélina sjálfa, og það er einhver olía í þessu... ég er alveg lost þegar það kemur að þessum málum, datt í hug að spyrja einhvern hérna, en ég lenti í því að það virðist vera einhver olía að komast úr þessu dæmi, lokið var ekki nógu vel hert þannig ég vona að það hafi bara verið það en hver veit,, allavega byrja á því að fá að vita hvað þetta er ?

Author:  egill0rn [ Thu 04. Jun 2009 01:44 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

ertu að tala um þetta neðst til hægri

Image

Author:  skaripuki [ Thu 04. Jun 2009 01:46 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

jamm þessi alveg lengst í hægra horninu,, takk fyrir þessa mynd

Author:  egill0rn [ Thu 04. Jun 2009 01:50 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

ég er nú ekki bestur í þessu en ég mundi giska að olíusían væri þarna inni

Author:  skaripuki [ Thu 04. Jun 2009 01:51 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

hmm ok, takk allavega, ég chekka betur á þessu

Author:  Loftur [ Thu 04. Jun 2009 03:08 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

Ég lenti í þessu sama þurfti að skifta um O-hring til að þetta hætti að frussa olíu.

Author:  Alpina [ Thu 04. Jun 2009 07:08 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

Þetta er olísían,, þeas vélarolían

Author:  skaripuki [ Thu 04. Jun 2009 08:36 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

all right O-ring, er þetta dýrt dæmi eða ??

Author:  gardara [ Thu 04. Jun 2009 11:01 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

o-ring, er það ekki bara gúmmí þéttikanturinn sem fylgir með nýrri síu?

Author:  Axel Jóhann [ Thu 04. Jun 2009 12:16 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

skaripuki wrote:
all right O-ring, er þetta dýrt dæmi eða ??




Nei svona sía kostar um 1500-2000kr keyptu bara nýja síu og þá fylgir O hringurinn með.

Author:  skaripuki [ Thu 04. Jun 2009 12:49 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

skipta þeir ekki um þetta þegar bíllinn fer í smurningu eða ?

Author:  gardara [ Thu 04. Jun 2009 12:52 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

skaripuki wrote:
skipta þeir ekki um þetta þegar bíllinn fer í smurningu eða ?


ættu að gera það en það getur gleymst

Author:  skaripuki [ Thu 04. Jun 2009 17:42 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

búið að redda þessu, var bara þessi þéttihringur

Author:  íbbi_ [ Fri 05. Jun 2009 07:30 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

Mjög stórt lol

Author:  slapi [ Fri 05. Jun 2009 20:36 ]
Post subject:  Re: turn hægramegin fremst í húddinu á e39 540

Vil ekki vera með nein leiðindi en svona upp á framtíðina þá er þetta v/m.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/