Page 1 of 1

8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 27. May 2009 20:02
by Maddi..
Hefur einhver reynt það? Veit að það kemst undir að aftan, en að framan? Þarf ég að rúlla frambrettin?

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 27. May 2009 20:04
by Einarsss
snýst þetta ekki um rétt offset? allavega nógu mikið pláss fyrir 8" og 25mm spacera á e30 með offset 35 á felgu ef það hjálpar

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 27. May 2009 20:52
by birkire
snýst allt út á offsettið

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 27. May 2009 20:54
by Maddi..
Hvaða offset væri ég þá helst að leita að?
Er að spá í M Contour replicum, kaupi náttúrulega ekki nema ég viti að þær komist undir :/

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 27. May 2009 22:00
by Djofullinn
Undan hvernig bíl eru þær?

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 27. May 2009 22:02
by Maddi..
Voru keyptar og notaðar undir e46 M3.

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 27. May 2009 23:07
by DABBI SIG
Held að þetta gæti orðið svolítið erfitt undir E36, nema hugsanlega með rúlluðum brettum og soldið stretch gúmmíum.

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 27. May 2009 23:38
by BirkirB
Minn er á 8.5x18 að framan, og 215/35 dekkjum...var á breiðari dekkjum og rakst þá smá í innra brettið þegar ég beygði í botn, gerist ekki núna...

offsetið er minnir mig 35, og ekkert er rúllað...nema smá að aftan, og hann er já lækkaður 60/40

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Thu 28. May 2009 00:51
by Maddi..
Offsetið er ET17.. þetta passar þá væntanlega ekki.. :?

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Thu 28. May 2009 00:58
by BirkirB
held ekki...nema brettin séu verulega rúlluð (heitir það ekki flair?) og dekkin stretchuð í klessu...

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Thu 28. May 2009 01:01
by Maddi..
Jámm, ég er all for að rúlla brettin að aftan, en ef þess þarf að framan vil ég frekar bara staggered, eða offset sem er ekki vesen.
Leitin að felgum heldur þá áfram.

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Thu 28. May 2009 02:40
by gardara
Ég er að reyna að troða ET 22 undir minn e36.... Gengur brösulega en skal takast! :twisted:

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Thu 28. May 2009 08:27
by arnibjorn
gardara wrote:Ég er að reyna að troða ET 22 undir minn e36.... Gengur brösulega en skal takast! :twisted:

Rétti hugsunarhátturinn Garðar! :D

Re: 8,5 að framan undir e36

PostPosted: Wed 03. Jun 2009 22:38
by Maddi..
gardara wrote:Ég er að reyna að troða ET 22 undir minn e36.... Gengur brösulega en skal takast! :twisted:


Ég keypti mér ET20 felgur í gær.
Eru 17" á 235/45 dekkjum, held að þetta ætti ekki að vera mikið mál ef ég set 215/40 og rúlla smá.