Page 1 of 1

OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Mon 04. May 2009 22:58
by BirkirB
Ég er með Pioneer keilu:
http://www.pioneerelectronics.com/PU.../TS-W2502D2|D4
TS-W2502D4: Dual 4 ohm, 4 Layer, Long Coil (2 ohm x or 8 ohm)

og svona magnara: http://www.pioneerelectronics.com/PU...eries/GM-6300F

Ég veit nákvæmlega ekki neitt um svona, pabbi hjálpaði mér en ég held að keilan sé ekki að fá allt sem hún á að geta fengið, og hann er ekkert mjög klár á svona heldur.

Getur einhver sniðugur hjálpað mér með þetta?
mér dettur ekki í hug að reyna að googla þetta því ég veit ekkert hvað ég á að googla...

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Mon 04. May 2009 23:18
by ///M
Googla "How To Bridge an Amplifier" gefur góð results, til dæmis: http://www.wikihow.com/Bridge-an-Amplifier :)

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Mon 04. May 2009 23:32
by MR.BOOM
Ef þú átt inneign þá getur þú hringt í feita bitra gaurinn ,hann mun reyna hjálpa þér í gegnum síma,,,,
Er ekki að nenna því í gegnum netið.

8631792 Sæmundur Eric

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Mon 04. May 2009 23:58
by BirkirB
Krafturinn klikkar ekki á svörunum...eitthvað annað en live2cruize :roll:

ég þarf að brúa þetta í tvær rásir og senda þær inná keiluna...það er hægt því það eru tvær rásir(?) inná keiluna (+-|+-)...ohm eru held ég vandamálin...en keilan er 800W 2x 4 ohm og magnarinn á að vera 2x150W bridged 4 ohm

Ég er búinn að gleyma öllu sem ég lærði um ohm og svoleiðis...

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 00:01
by arnibjorn
Hringdu í Sæma. Það er ástæða fyrir að hann er kallaður MR. BOOOOOOOM 8)

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 00:18
by BirkirB
Já, á morgun...
Lélegt samt að pabbi sem er nýlærður rafvirki skilji þetta ekkert...nema hann nenni því ekki :mrgreen:

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 08:07
by Einarsss
RTFM? ;)

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 09:00
by crashed
common þú ert með 2 rásir á magnaranum og ef þú teingir keylu við hann þá teingiru hana við plúsinn á rás 1 og mínusinn á rás 2

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 09:11
by Einarsss
stundum þarf að segja magnaranum að þetta sé brúað með því að ýta á takka ... var þannig á pioneer magnara sem ég átti fyrir löngu

en maður þurfti að setja já annan vírinn á plúsinn á annari rásinni og hinn á mínusinn á hinni

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 10:57
by BirkirB
Ég er búinn að brenna manualana með augunum því ég er búinn að lesa þá svo oft.
Ohm eru vesenið...og ég hef ekki einu sinni reynt að pæla í því...

Og ég talaði við einhvern græjukall sem vissi ekki shit...

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 14:33
by flatbeat
Ef ég skil þig rétt þá er magnarinn gefinn upp sem 4ohm stable í bridged mode?

Þá myndi ég tengja keiluna inná magnarann á 8ohm viðnámi með að tengja keiluna í series (sjá mynd neðar) og síðan bridge-a tvær rásir sem gerir 4ohm viðnám samtals í magnarann Að mig minnir!

Horfðu á sitthvorann speakerinn þarna sem sitthvort voice coilið.
(Þessi mynd sýnir ekki bridged)
Image

Það gæti verið að ég sé að muna þetta vitlaust þar sem það er svolítið síðan ég var að fikta í svona þannig að ég legg til að þú athugir þetta betur sjálfur, en mig minnir alla vega að svona sé þetta.

Vona að þetta hjálpi kannski eitthvað :)

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 15:03
by jon mar
En mundu svo að magnarinn skilar út miklu minna afli á 8ohm heldur en 4ohm :wink: Oft meira segja stendur á mögnurunum hjá tengjunum hvar á að brúa.


Og eftir að hafa skoðað specs fyrir magnarann og keiluna...... þá passar þetta dót engan vegin saman. Magnarinn 4x120/2x300 bridged í peak power og 4x50rms/2x150rms. Allt við 4ohm.

Keilan er svo 3000w peak og 800rms.

Það sér hver maður í hendi sér að þú nærð aldrei neinu alminnilegu útúr þessari keilu með þennann magnara. Hann hentar betur til að keyra venjulega hátalara. Svona eins og ca fjóra 200w. Fyrir þessa keilu þyrftiru helst af öllu magnara sem skilar 500-800rms brúaður við 2ohm/4ohm, eða bara mono block með æskilegum tölum.


Og já, ég tel mig sæmilega sjóaðann í græjunum :lol:

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 20:02
by BirkirB
skemmtilegt að segja frá því að þegar ég keypti þessa keilu þá bað ég bara um magnara sem passaði við hana, og þessi magnari kom...ég spurði meirasegja sérstaklega hvort ég gæti örugglega notað hann... - "já, hann á að passa"

Svona er auðvelt að plata fólk sem veit ekki neitt - Epic Fail... -30.000 kall.

Re: OT Að brúa magnara - ég er ósjálfbjarga

PostPosted: Tue 05. May 2009 20:05
by jon mar
nei nei, góður hátalaramagnari 8)

Nú þarftu bara fullorðins magnara fyrir keiluna :D Helst að hann geti rönnað brúaður á 2ohm ef hann er ekki monoblock.


Og veistu, mín reynsla, sölufólk á græjum veit stundum EKKERT, en þykist samt vita fullt og steypir bara útí það óendanlega til að ná sölunni.