Enn einn þráðurinn um eyðslu á 750i...

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Enn einn þráðurinn um eyðslu á 750i...

Postby Eggert » Sun 03. May 2009 19:13

Sælir kraftsmenn,


Þið ykkar sem hafið átt og notað E38 750i, hvað voru þessir bílar að eyða hjá ykkur á 100km í blönduðum innanbæjarakstri? Maður veit í rauninni aldrei hvað er að marka einhverjar tölur sem maður finnur á Google, en þær segja sumar 16-18, og aðrar segja 23-28 l/100km. Hver er reynslan? Hvað getur maður sloppið með ef maður er sparsamur á inngjöfinni??
Ég er búinn að nota leitina en finn voðalega lítið þar.


Kv,
:santa:
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Re: Enn einn þráðurinn um eyðslu á 750i...

Postby Wolf » Sun 03. May 2009 20:35

Góður þráður um 750i E38 m.a eyðslu og fl..


http://blyfotur.is/viewtopic.php?t=5026
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Re: Enn einn þráðurinn um eyðslu á 750i...

Postby raxions » Sun 03. May 2009 23:55

Minn E38 750iL er ´97 módel, og er keyrður 197.000km. Hef verið að skrá niður tölurnar núna nokkra tanka í röð, og það er skemmst frá því að segja að tölurnar komu mér talsvert á óvart, þ.e.a.s hversu háar þær voru. Hef verið núna 4 fulla tanka í röð í kringum 29L/100km==> og nota bene að ég er mjög slakur á inngjöfinni, en reyndar eru þetta mest allt stuttar vegalengdir sem ég er að fara, vélin lang oftast köld og slíkt. En ég virðist ekki ná honum neðar en þetta. Áður en ég fór að skrá þetta niður var ég að vonast til að vera í kring um 20L/100km...það er nú ekki svo gott :o
750iL E38
User avatar
raxions
Kassabílstjóri
 
Posts: 156
Joined: Mon 05. Mar 2007 00:58

Re: Enn einn þráðurinn um eyðslu á 750i...

Postby IvanAnders » Mon 04. May 2009 12:56

raxions wrote:Minn E38 750iL er ´97 módel, og er keyrður 197.000km. Hef verið að skrá niður tölurnar núna nokkra tanka í röð, og það er skemmst frá því að segja að tölurnar komu mér talsvert á óvart, þ.e.a.s hversu háar þær voru. Hef verið núna 4 fulla tanka í röð í kringum 29L/100km==> og nota bene að ég er mjög slakur á inngjöfinni, en reyndar eru þetta mest allt stuttar vegalengdir sem ég er að fara, vélin lang oftast köld og slíkt. En ég virðist ekki ná honum neðar en þetta. Áður en ég fór að skrá þetta niður var ég að vonast til að vera í kring um 20L/100km...það er nú ekki svo gott :o


Ég er ekki hissa, þetta atriði telur meira en þú heldur!

September 08´ Fór ég með rúma 4 tanka,- c.a. 300ltr á einum mánuði, allt innanbæjar.
Bíllinn var í kringum 13.8ltr/100km hjá mér.

Október 08´Fór ég með einn tank allan mánuðinn! c.a. 70ltr, keyrði nánast BARA í vinnuna og heim c.a. 5km hvor leið. Þá var ég að sjá á milli 18 og 20ltr/100km -gjörsamlega inngjafarlaust!
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: Enn einn þráðurinn um eyðslu á 750i...

Postby raxions » Mon 04. May 2009 17:07

IvanAnders wrote:
raxions wrote:Minn E38 750iL er ´97 módel, og er keyrður 197.000km. Hef verið að skrá niður tölurnar núna nokkra tanka í röð, og það er skemmst frá því að segja að tölurnar komu mér talsvert á óvart, þ.e.a.s hversu háar þær voru. Hef verið núna 4 fulla tanka í röð í kringum 29L/100km==> og nota bene að ég er mjög slakur á inngjöfinni, en reyndar eru þetta mest allt stuttar vegalengdir sem ég er að fara, vélin lang oftast köld og slíkt. En ég virðist ekki ná honum neðar en þetta. Áður en ég fór að skrá þetta niður var ég að vonast til að vera í kring um 20L/100km...það er nú ekki svo gott :o


Ég er ekki hissa, þetta atriði telur meira en þú heldur!

September 08´ Fór ég með rúma 4 tanka,- c.a. 300ltr á einum mánuði, allt innanbæjar.
Bíllinn var í kringum 13.8ltr/100km hjá mér.

Október 08´Fór ég með einn tank allan mánuðinn! c.a. 70ltr, keyrði nánast BARA í vinnuna og heim c.a. 5km hvor leið. Þá var ég að sjá á milli 18 og 20ltr/100km -gjörsamlega inngjafarlaust!


Já ok, þetta er sem sagt ekki svo óeðlilegt. Þetta er einmitt þannig akstur hjá mér, gef gjörsamlega ekkert inn og er að keyra þessar stuttu innanbæjarvegalengdir, 3-5 km aðra leið.
750iL E38
User avatar
raxions
Kassabílstjóri
 
Posts: 156
Joined: Mon 05. Mar 2007 00:58

Re: Enn einn þráðurinn um eyðslu á 750i...

Postby trigger » Mon 04. May 2009 20:23

Á rúmu ári er ég búinn að prófa ýmislegt á e38 750i árg 1997 (ekinn 270þ):
Innanbæjar í Reykjavík (11km leggir) í sumar 18-19L/100km.
Utanbæjar (Ak-Rvk) 10-11L/100km.
Innanbæjar á Akureyri í hörkufrosti (-10) og stuttum vegalengdum(1-2km leggir) 28-29L/100km.

Það munar rosalega um það þegar vélin er farin að keyra heit og maður getur keyrt í einhverja smástund á jöfnum hraða, bara að hafa kaflann frá Miklubraut/Kringlumýrarabraut og að brúnni við Smárann getur náð eyðslunni talsvert niður en fyrst og fremst er það jafni hraðinn. En ýmislegt skiptir máli t.d. lækkaði utanbæjareyðslan um 1-2L við það að ég fór á almennileg dekk.

Eftir að ég byrjaði að keyra bílinn innanbæjar var hann oft í 23-25L innanbæjar en svo eftir nokkrar vikur og smá"natni" við gjöfina og hvernig maður notar vélina fór eyðslan niður í 18-19L á sömu leið við sömu aðstæður (hita, búnað bíls, tíma dags, etc).
Enginn BMW
trigger
Kassabílstjóri
 
Posts: 140
Joined: Sat 24. Feb 2007 20:22
Location: Akureyri

Re: Enn einn þráðurinn um eyðslu á 750i...

Postby elli » Mon 04. May 2009 21:58

Ég setti innlegg hér á spjallið fyrir nokkru varðandi þetta. Það féll í grýttan jarðveg sérlega hjá þeim sem hafa ekki átt slíkann bíl. Ég myndi ekki hræðast eyðsluna á þessu. Það er vel hægt að halda henni í skefjum. Það eru aðrir hlutir í rekstrinum á þeim sem koma til með að skipta meira máli.
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests