Útvarpsloftnet í E32

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Útvarpsloftnet í E32

Postby Bjöggi » Sat 02. May 2009 12:43

Sælir limir,

var að tengja útvarp í bílinn minn og ekkert óeðlilegt við það nema að útvarpið nær engu sambandi. loftnetskapallinn er til staðar og í sambandi aftan á útvarpinu. en það er ekkert loftnet utan á bílnum, hvar er það staðsett í í bílnum?? hef ekkert skoðað þetta ennþá og ábendingar eru vel þegnar. skoðaði realoem til að fá vísbendingar og á svo eftir að skoða þetta betur.

það hefur ekkert hjálpað að gúggla þetta, getur ekki einhver þarna úti vísað mér á rétta braut?
Bjöggi
BMW 318IA E46 Touring '01
User avatar
Bjöggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 346
Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Location: RVK

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby gardara » Sat 02. May 2009 12:52

Er loftnetið ekki í afturrúðunni?
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby sosupabbi » Sat 02. May 2009 13:07

Held það sé í afturrúðunni, nesradio á að geta fixað svona vandamál.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby ömmudriver » Sat 02. May 2009 15:34

Loftnetið er í afturrúðunni og magnarinn fyrir það er fyrir aftan panelinn sem er vinstra meginn afturí eða við hausinn á farþeganum sem situr fyrir aftan bílstjóran.
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby gardara » Sat 02. May 2009 15:37

Gætir líka þurft að tengja remote fyrir loftnetsmagnarann. Ég fékk hrikalega slæmt signal þótt allt væri tengt, fór að kanna málið og þá vantaði að tengja remote fyrir loftnetsmagnarann
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby jon mar » Sat 02. May 2009 15:38

fólk flaskar oft á því að setja útvarpsmagnarann í samband þegar það skiptir um útvarpstæki held ég.

Allavega í e34 þá er talað um að þetta sé lítill hvítur vír í útvarpsloominu í mælaborðinu. Þarf að fá 12v þegar útvarpið er í gangi ef allt á að virka. Remote frá tækinu ætti að duga.

Prófaðu þetta :)



arg!! garðar beat me to it :lol:
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby Bjöggi » Sat 02. May 2009 17:35

ollræd, þakka góð svör.

sést það samt ekkert á afturrúðunni hvort það sé loftnet í henni eða ekki.
eru ekki lóðréttar línur innan um hitann (láréttu línurnar)?

skrítið að sumir e32 séu með þetta í rúðunni og sumir með stöng.
Bjöggi
BMW 318IA E46 Touring '01
User avatar
Bjöggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 346
Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Location: RVK

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby Bjöggi » Sun 03. May 2009 09:46

búinn að finna loftnetsmagnarann og vírinn fyrir hann í útvarpslúminu. tengdi power antenna vírinn úr útvarpinu í magnarann en það gerist ekkert. tékkaði á því með prufulampa hvort það skilaði sér ekki örugglega og það gerir það samt er engin breyting. vírarnir úr magnaranum eru tengdir við rúðuna og allt virðist vera eins og það á að vera.

getur nokkuð annað verið að en bilaður magnari?
hafa menn lent í því að þetta bili?
Bjöggi
BMW 318IA E46 Touring '01
User avatar
Bjöggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 346
Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Location: RVK

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby gardara » Sun 03. May 2009 10:20

Nærðu engu útvarpssambandi? Ef þetta er magnarinn, þá ættirðu alveg að ná einhverri útvarpssendingu.. Bara lélegri og hætt við að útvarpið flökti við keyrslu.
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Re: Útvarpsloftnet í E32

Postby Bjöggi » Sun 03. May 2009 10:58

nei ég næ bara engu útvarpssambandi. spilarinn er reyndar af alódýrustu gerð með slöppu útvarpi en ekkert samband næst samt.

ég hefði kannski þurft að prófa bara að setja í sambandi laust loftnet með kapli og sjá hvort það náist eitthvað samband svoleiðis.
Bjöggi
BMW 318IA E46 Touring '01
User avatar
Bjöggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 346
Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Location: RVK


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests