demi wrote:getur þetta ekki líka látið svona ef bremsuvökvinn er gamall og rakamettaður ? eða lætur hann þá eins og það sé loft á kerfinu ?
annars eru diskarnir fyrsta gisk
Það er ólíklegt, ef það er loft á kerfinu þá fer það ekkert á milli mála, þú ættir að finna það þegar þú bremsar því mótstaðan ætti að vera talsvert minni.
Eins og Sæmi sagði og ég áður, ef þetta eru ekki diskrarnir þá eru fóðringarnar að framan líklegar.
Ég fór í gegnum þetta allt hjá mér til að losna við titring, og mundu að það geta alveg eins verið diskarnir að aftan sem valda titringi við bremsun. Það var vandamálið á endanum hjá mér, eftir að ég var búinn að skipta um fóðringar og diska að framan (og reyndar allt annað líka að framan, meira að segja bremsu caliperana).
Á endanum athugaði ég diskana að aftan og það var málið.