Page 1 of 2

Vandræði - OEM magnari í skotti er dauður

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 19:37
by BjarkiHS
Ég er í stökustu vandræðum með læsingar í E32 735 bíl....
Málið er að þegar ég opna bílinn, hvort sem er með lykli eða fjarstýringu þá læsir hann sér aftur.
Eftir nokkur skipti tollir hann opinn en læsir sér svo aftur við að loka/skella hurð, eða þegar ég keyri ofaní holu.
En aldrei opnar hann skottlok og einstaka skipti opnar hann ekki heldur bensínlok ???


Einhverjar hugmyndir ???? :oops: :| :cry:

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 19:42
by Einarsss
hugsanlega læsingin í skottinu sem er valdur að þessu ... lenti í því fyrir ca mánuði þegar það var mikið frost að læsingin bílstjórameginn læsti sér ekki almennilega og lét allt kerfið opna hina hurðina og skottið og ekki hægt að læsa.

Hvernig þú leysir þetta? ekki hugmynd hehe

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 19:45
by BjarkiHS
einarsss wrote:hugsanlega læsingin í skottinu sem er valdur að þessu ... lenti í því fyrir ca mánuði þegar það var mikið frost að læsingin bílstjórameginn læsti sér ekki almennilega og lét allt kerfið opna hina hurðina og skottið og ekki hægt að læsa.

Hvernig þú leysir þetta? ekki hugmynd hehe


baaaaaaaaaaaaaah Mig vantar að opna skottið á honum. :santa:

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 19:52
by ömmudriver
Ég veit nú ekki hvernig þetta virkar í E32 eða BMW yfir höfuð en er ekki eitthvað sem að stýrir samlæsingunum s.s. eins og í Hyundai Elantra '92 þá var það samlæsingar mótorinn í bílstjórahurðinni sem "stýrði" hinum mótorunum :lol: :oops:


Just trying to help you know :lol:

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 21:56
by BjarkiHS
Ég bara hef ekki græna ?!?

Allar hugmyndir vel þegnar :roll:

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 21:58
by Einsii
ömmudriver wrote:Ég veit nú ekki hvernig þetta virkar í E32 eða BMW yfir höfuð en er ekki eitthvað sem að stýrir samlæsingunum s.s. eins og í Hyundai Elantra '92 þá var það samlæsingar mótorinn í bílstjórahurðinni sem "stýrði" hinum mótorunum :lol: :oops:


Just trying to help you know :lol:

Ég er viss um að þrír þeirra stýra þessu í E32. Báðir frammí og svo skottlæsingin. Ef einhver þeirra er ekki að opna eða loka þá gefur hann alltaf skipun um að fara í þá stöðu sem hann er á alla hina..
Þannig allavega skil ég þetta en er ekkert viss um að þetta sé sannleikur :)

Ef þetta er rétt þá gæti trikkið verið að aftengja skottlæsingarunitið. En ekki spurja mig hvernig þú kemst þangað með læst skottið

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Mon 27. Apr 2009 22:18
by BjarkiHS
Svo er líka skrítið að ég get ekki heldur snúið lykli í skottlæsingunni

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Tue 28. Apr 2009 04:03
by IngóJP
BjarkiHS wrote:Svo er líka skrítið að ég get ekki heldur snúið lykli í skottlæsingunni


úðaðu bara feiti inn þarf að smyrja þetta eflaust ekki mikið notað

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Tue 28. Apr 2009 12:52
by gardara
Kemstu ekki í skottið innanfrá?

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Tue 28. Apr 2009 13:08
by BjarkiHS
Ég er aðeins of breiður til að skríða í gegnum skíðapokagatið :mrgreen:

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Wed 29. Apr 2009 11:31
by crashed
það eru 2 mótorar sem stjórna samlæsingunum 1 í bílstjóra hurðini og 1 í skottinu og það er skott mótorinn sem er að trufla þig og til að laga þetta geturu prufað að dæla wd40 í skottlæsinguna en mun öruglega ekki virka en í E36 þá er samlæsingar tölvan undir hanskahólfinu og ef hún er þar á þínum bíl þá geturu prufað að afteingja plug þangað til hinar læsingarnar fara að virka og í E36 að þá er eitt plög sem er með 2 þikkum vírum hvítum og bláum sem sjá um að opna bensínlokið og skottið getur prufað að setja straum á þá og hamast með likilinn í skott lokinu og prufað að nota taung til að snúa likinum bara passa að brjóta eða beigja hann ekki

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Wed 29. Apr 2009 15:06
by BjarkiHS
Nú prufaði ég að fá vin minn til að snúa lykli í bílstjórahurðinni, og hélt í skottlæsingarhnappinn, ég fann að hann "heggur" þ.e. reynir að opna en tekst ekki.. :?:

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Thu 30. Apr 2009 09:21
by gardara
Þegar ég lenti í þessu á mínum e36 þá var það pinni í lásnum afturí sem rann framhjá þegar ég læsti.. Ég komst að þessu þegar ég opnaði lásinn innanfrá. Reif draslið í sundur, smurði það heilann helling með WD40 og læsti svo skottinu aftur en þá vildi nú ekki betur til en að lásinn rann aftur svona til vegna þess að hann var of lube-aður hjá mér, svo ég þurfti að rífa draslið aftur í sundur og þurrka smurninguna burt :lol:

Svo að nóg WD40 er ekki alltaf lausnin.

Hefurðu annars prófað að toga takkann jafn mikið út og þú getur, jafnvel taka frá lista (ef það er einhver listi í kringum takkann á e32) læsa/aflæsa þá og sjá hvort það dugi?

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Thu 30. Apr 2009 09:59
by Ingvarinn
Láttu Aron skríða þarna í gegn með vasaljós ég lenti reyndar aldrei í þessu en það var stundum vesen með bensínlokið í frosti.
En annars var frekar vesen hjá mér að fá hann til að læsa sér en ekki að opna sig

Re: Vandræði - Læst skottlok

PostPosted: Fri 01. May 2009 22:21
by krusi79
lenti í svipuðu með skottið á E32 sem ég átti, þá dugði að toga út takkann og læsa og aflæsa til að opna skottið..

semsagt bara stóð á sér skottloks takkinn (fór ekki alla leið til baka)