Lenti í því í dag þegar ég ætlaði að leggja af stað að bíllinn var pikkfastur og lyftist og seig bara þegar ég reyndi að keyra fram eða aftur. Virðist semsagt vera fastur í handbremsu (lýsir þetta sér ekki annars þannig?)
Svo ætla ég að taka diskana af að aftan og kíkja á þetta þá næ ég disknum ekki af. Er búinn að taka caliperinn og losa diskinn og hann er vel laus og skröltir en ég næ honum samt ekki af höbbnum. Það er semsagt hægt að vagga disknum slatta en ekki snúa en það er eitthvað í disknum sem heldur á móti. Væntanlega af því að handbremsan stendur á sér eða hvað?
Eru menn með einhver góð ráð til að ná þessu af?
Með von um skjót og góð ráð!
kv. Ingimar

