Page 1 of 1

Leit af leka í skotti - Ryð

PostPosted: Tue 07. Apr 2009 01:17
by Brútus
Image

Image

Image

Image

Image

Er þetta ekki pottþétt leki með þessu ?

Re: Leit af leka í skotti - Ryð

PostPosted: Tue 07. Apr 2009 10:03
by gunnar
Verður eiginlega að taka betri mynd ásamt því að minnka hana um svona 500% :lol:

Re: Leit af leka í skotti - Ryð

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 00:10
by Dóri-
sandblása, tebba, grunna, lakka og svo smá tektíll þá ertu safe 8)
Held að meginreglan með trebba sé ca 1cm2 sem þú mátt fylla í göt.
Allavegana reddaði ég þessu þannig á mínum

Re: Leit af leka í skotti - Ryð

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 17:56
by adler
Þegar að maður leitar að leka í skotti þá er best að leggjast inní skottið með ljósahund og taka snúruna á ljósahundinum inn með hurð og fá svo einhvern til að buna vatni á bílinn þá með skottlokið lokað :wink: allt í hringum skott lokið uppá afturrúðu og með ljósunum það flýtir fyrir að finna lekann ef að menn rífa klæðningu úr skottinu fyrst.

Svona lekar geta verið mjög lúmskir og það getur tekið smá tíma að staðsetja lekann.

Þetta er besta aðferðin til að finna svona leka og uppræta hann fyrir fullt og allt.

Re: Leit af leka í skotti - Ryð

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 18:00
by crashed
alls ekki nota trefjasparsl þarna svo mikkil högg sem lenda á honum við læsinguna að hann getur brotnað mjög fljótlega en ég mæli með því að kaupa bara nýjan gafl og setja í hann ég gerði það allavegana við minn og svona rið getur hafa myndast þarna bara vegna þess að skotið hafi rispað bodýið og svo riðgað útfrá því

Re: Leit af leka í skotti - Ryð

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 20:51
by Brútus
Þakka svörin.
Ég skipti um ljósin af gamni.
Kominn með gömla retro stuffið! Rauðu og hvítu fengu að fara , voru líka orðin pirrandi.
En allavega þá
*pússaði ég upp riðið.
*Grunnaði yfir stóran hluta þarna
svo mun ég.
*Mála yfir þarna
*kítta í kring um "gatið" þarna í miðjunni með kítti sem að verður ekki mjög hart.
*Kítta svo inn í gúmmílistan/Sá leyfar af gömlu kítti í honum , mun heinsa það.

Svo mun ég henda einhverjum óheppnum í skottið með vasaljós og svoleiðis frussa yfir skottið og meðfram öllu.

Re: Leit af leka í skotti - Ryð

PostPosted: Wed 08. Apr 2009 21:02
by Brútus
Ein spurning til viðbótar . .
Þessar smellur sem að voru í plaststykkinu . .
þarf ég að kaupa þær allar aftur . . ég stakk úr þeim miðjunar til að losa þær . . :santa: