Page 1 of 1

Komast frá ljósatakka í húdd - E36

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 18:12
by Brútus
Er að fara að leggja fyrir kösturum og keypti eitthvað kit og þarf að komast með snúrurnar þarna á milli.

Re: Komast frá ljósatakka í húdd - E36

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 18:27
by jon mar
það eru alveg örugglega gúmmítappar í hvalbaknum sem þú getur tekið þetta í gegnum. Eins gætiru eflaust komið þessu með restinni af loominu ef þú ert flinkur.

Opna augun og nota hausinn til að fá góðar hugmyndir.

Re: Komast frá ljósatakka í húdd - E36

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 18:28
by Angelic0-
Aron Friðrik hefur reynslu af þessu í E36...

mér finnst endilega eins og hann hafi keypt takka og kastara og wiring loomið hafi verið til staðar fyrir eða eitthvað :P

Re: Komast frá ljósatakka í húdd - E36

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 20:32
by Zed III
Tengingarnar eru oft til staðar, voru svoleiðis hjá mér. Ég er bara að glíma við relayið mitt.

Tékkaðu bara í kringum stuðarann þar sem ljósin fara hvort það séu ekki plögg sem eru ónotuð.

Re: Komast frá ljósatakka í húdd - E36

PostPosted: Mon 06. Apr 2009 21:05
by Brútus
Heyriði já takk fyrir svör.
Ég ætla að rífa aðeins frá þessu í kvöld og svona sjá hvernig landið lyggur í þessu.
Hef bara rifið úr ljósaskiptiuniitið sjálft með takkanum og því.
Gæti ég þurft að taka mælaborðið úr og einhverjar svoleiðis æfingar ?

Zed III wrote:Tengingarnar eru oft til staðar, voru svoleiðis hjá mér. Ég er bara að glíma við relayið mitt.

Tékkaðu bara í kringum stuðarann þar sem ljósin fara hvort það séu ekki plögg sem eru ónotuð.


Hjá mér er það þannig að takkinn inni í mælaborði var meira að segja bara svona "one button"
Er kominn með nýjan takka sem er með tveimur hnöppum.
Fann aldrei neinar snúrur fyrir þetta framan í bílnum og hef verið að reyna að átta mig á þessu. :/

Re: Komast frá ljósatakka í húdd - E36

PostPosted: Wed 29. Apr 2009 08:51
by Habbzen
Hvar keyptiru þetta snúrukit ? þarf að setja kastara í minn og vantar snúrur.