Page 1 of 1

Hvar er best að fara með 18" e39 M5 felgur í yfirhalningu?

PostPosted: Fri 03. Apr 2009 09:54
by pes1
Þannig er mál með vexti að felgurnar hjá mér eru orðnar nokkuð sjoppulegar, ég hef ekki fundið neinar sambærilegar felgur til sölu sem ég get keypt notaðar.

Hafa menn reynslu af því að láta mála upp á nýtt eða polyhúða, ég vil helst halda þessum orginal ,,reyk" lit sem er á felgunum, eins og M5 felgurnar eru orginal en hef sterkan grun um að það gerist ekki við svona aðgerð. Ég vil ekki fá einhverja subbulega leka á felgunum,

svo spurningin er einföld: er einhver fær um að framkvæma svona aðgerð hérna á klakanum og hvað er sanngjarnt verð fyrir svona?

Re: Hvar er best að fara með 18" e39 M5 felgur í yfirhalningu?

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 15:58
by Fieldy
http://www.polyhudun.is/thjonusta/felguhudun/

Hægt er að velja um 300 liti


þeir ættu örugglega að eiga einhvern lit sem er sambærilegur orginal litnum :wink:

Re: Hvar er best að fara með 18" e39 M5 felgur í yfirhalningu?

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 17:03
by bimmer
Gætir prufað að tala við bílamálarana á spjallinu, Árna (Sezar), Brynjar (SHII) eða Jón (Mr. Hung).

Re: Hvar er best að fara með 18" e39 M5 felgur í yfirhalningu?

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 18:03
by pes1
takk fyrir þessi innlegg! :wink:

Re: Hvar er best að fara með 18" e39 M5 felgur í yfirhalningu?

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 22:28
by Zed III
Ég kíkti til polyhúðunar en fann ekki lit sem mér leist á, þeir voru allir frekar dull. Þó þeir hafi 300 liti þá eru hátt í 300 af þeim ónothæfir á felgur nema þú hafir verulega afbrigðilegan smekk.

Ég endaði á að láta taka mínar í gegn hjá fyrirtæki í Hafnarfirði, Hagstál held ég. Vinnubrögðin voru nokkuð góð (ekki fullkomin) en liturinn er fullkominn. Felgurnar líta svona út eftir meðferðina hjá þeim:

Image

en voru svona áður
Image

Re: Hvar er best að fara með 18" e39 M5 felgur í yfirhalningu?

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 23:05
by Sezar
pes1 wrote:Þannig er mál með vexti að felgurnar hjá mér eru orðnar nokkuð sjoppulegar, ég hef ekki fundið neinar sambærilegar felgur til sölu sem ég get keypt notaðar.

Hafa menn reynslu af því að láta mála upp á nýtt eða polyhúða, ég vil helst halda þessum orginal ,,reyk" lit sem er á felgunum, eins og M5 felgurnar eru orginal en hef sterkan grun um að það gerist ekki við svona aðgerð. Ég vil ekki fá einhverja subbulega leka á felgunum,

svo spurningin er einföld: er einhver fær um að framkvæma svona aðgerð hérna á klakanum og hvað er sanngjarnt verð fyrir svona?



Til þess að ná þessum "reyk" lit, eða dark chrome verður að mála felguna með svörtum undirlit og rétt úða viachrome perlu yfir. Má alls ekki perla þær of mikið, svarti liturinn verður að grisja í gegn. :wink:

Re: Hvar er best að fara með 18" e39 M5 felgur í yfirhalningu?

PostPosted: Sun 05. Apr 2009 20:48
by Alpina
Sezar wrote:
Til þess að ná þessum "reyk" lit, eða dark chrome verður að mála felguna með svörtum undirlit og rétt úða viachrome perlu yfir. Má alls ekki perla þær of mikið, svarti liturinn verður að grisja í gegn.
:wink:



Image


Image