Page 1 of 2

Gírkassavesen - Edit: komið í "lag"

PostPosted: Sun 29. Mar 2009 22:47
by T-bone
Sælir.

Ég var að pæla hvort einhver gæti hjálpað mér svolítið. Ég lenti í því að fara á kant á E30 dollunni minni, og eyðilagði olíupönnuna. Ekkert mál með það, búinn að redda nýrri og er að skipta.

Hinsvegar það sem ég skil ekki alveg er það að eftir að þetta gerðist þá kem ég bílnum ekki í gír, nema 2. og 4. Kem honum ekki í neinn gír sem krefst þess að ég ýti gírstönginni "fram"

getur einhver ýmindað sér hvað þetta getur verið?

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Sun 29. Mar 2009 22:54
by Angelic0-
pacifica wrote:Sælir.

Bognað skiptigaffall við höggið :?:

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Sun 29. Mar 2009 22:54
by GunniT
búin að skoða hvort þú hafir ekki rifið mótorpúða eða gírkassapúða?? ertu búin að kíkja undir bílinn??

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Sun 29. Mar 2009 22:57
by Angelic0-
GunniT wrote:búin að skoða hvort þú hafir ekki rifið mótorpúða eða gírkassapúða?? ertu búin að kíkja undir bílinn??

Það eru náttúrulega POLY fóðringar í stífunum að framan, svo að ég get alveg ýmindað mér að höggið fyrir gírkassa / mótor hafi verið alveg MASSIVE...

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Sun 29. Mar 2009 23:12
by T-bone
Angelic0- wrote:
GunniT wrote:búin að skoða hvort þú hafir ekki rifið mótorpúða eða gírkassapúða?? ertu búin að kíkja undir bílinn??

Það eru náttúrulega POLY fóðringar í stífunum að framan, svo að ég get alveg ýmindað mér að höggið fyrir gírkassa / mótor hafi verið alveg MASSIVE...

Já, ég er búinn að kíkja undir bílinn...

Ég er nú búinn að taka olíupönnuna undan, og ég losaði mótorpúðana til þess, og mér sýnist þeir vera heilir. Veit ekki með gírkassapúðana.. tékka á því. Er eitthvað annað sem það gæti verið? ætla bara að leggjast í það á morgun að finna útúr þessu... og kaupa pakkningu á olíupönnuna;)

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Sun 29. Mar 2009 23:47
by srr
Þessi gírkassi þinn kom úr E28 bílnum mínum, fyrrverandi 520i, núna 535i :)

Useless info kannski, en langaði að deila því með þér :wink:

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Sun 29. Mar 2009 23:50
by Mazi!
Ertu búinn að kanna skipti stöngina og allann skiptibúnaðinn?

finnst þetta hljóma svolítið einsog eitthvað hafi bara klikkað þar

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Mon 30. Mar 2009 01:57
by ingo_GT
myndi tjekka á skifti búnaðnum

Lenti oft í því á gamla e36 mínu þá var stönginn sem fyrr í gírkassan fuck up þanni ég þurti að ýtta gg fast alltaf á gírstönginna til að koma honum í gír og stundum vilti hann ekki fara í gír og síðan þegar ég tjekkaði á þessu þá var gírstönginn laus eiglega á gírkassanum....

Gætti verið einhvað svona svipað hjá þér :)

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Mon 30. Mar 2009 08:51
by T-bone
Þakka fyrir öll svörin. Tékka á þessu öllu þegar ég kem heim úr skólanum ;)

Re: Gírkassavesen

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 23:23
by T-bone
Komið í "lag."

Þetta var víst bara það að skipti bracketið hefur ekki verið fest almennilega í bílinn þegar kassinn var settur í bílinn, og það lá bara ofan á aftari festingunni, en hún er líka kengbogin, og það hefur ekki gerst við höggið.

En við það að bracketið fór undir festinguna kom ég stönginni ekki fram því að þá fór hún í kantinn á gatinu fyrir stöngina...

Hefur einhver lent í þessu áður? :shock:

Re: Gírkassavesen - Edit: komið í "lag"

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 23:26
by Angelic0-
hvor gaurinn losnaði :?:

efri eða neðri :?:

Re: Gírkassavesen - Edit: komið í "lag"

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 23:31
by T-bone
Angelic0- wrote:hvor gaurinn losnaði :?:

efri eða neðri :?:

Image

Pinninn vinstra megin á myndinni var ekki í festingunni... (veit að þetta er ekki nákvæmlega það sama, en close enough)

Re: Gírkassavesen - Edit: komið í "lag"

PostPosted: Tue 31. Mar 2009 23:34
by Angelic0-
á gaurnum sem að kemur neðan á gírstöngina :?:

Re: Gírkassavesen - Edit: komið í "lag"

PostPosted: Wed 01. Apr 2009 00:46
by T-bone
Angelic0- wrote:á gaurnum sem að kemur neðan á gírstöngina :?:

jebb.

Re: Gírkassavesen - Edit: komið í "lag"

PostPosted: Wed 01. Apr 2009 00:48
by Angelic0-
pacifica wrote:
Angelic0- wrote:á gaurnum sem að kemur neðan á gírstöngina :?:

jebb.

Þetta var alveg 110 prósent á sínum stað þegar að við settum bílinn saman þar sem að það var skipt um fóðringuna sem að þetta stingst inn í :!:

Hinsvegar finnst mér líklegt að það hafi teygst vel á gírkassa og mótorpúðum við höggið og þetta gæti alveg hafa færst við það....