Sælir.
Ég var að pæla hvort einhver gæti hjálpað mér svolítið. Ég lenti í því að fara á kant á E30 dollunni minni, og eyðilagði olíupönnuna. Ekkert mál með það, búinn að redda nýrri og er að skipta.
Hinsvegar það sem ég skil ekki alveg er það að eftir að þetta gerðist þá kem ég bílnum ekki í gír, nema 2. og 4. Kem honum ekki í neinn gír sem krefst þess að ég ýti gírstönginni "fram"
getur einhver ýmindað sér hvað þetta getur verið?




