Page 1 of 3
Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Sun 15. Mar 2009 23:45
by gardara
Seinasta fimmtudag byrjaði bíllinn að ganga illa hjá mér yfir 2000rpm og þegar ég tek af stað úr kyrrstæðu.
Einkennin eru á þann veg að bíllinn er máttlausari, titrar, tilfinningin er svolítið eins og það sé verið að drepast á bílnum eða þá eins og ég sé í of þungum gír.....
Ég með minni miklu reynslu af bilanagreiningum fór að kanna málið og hef komist að því að þetta er mun verra þegar bíllinn er orðinn heitur. Og reyndar í dag er þessi tilfinning alltaf, ekki bara yfir 2000rpm.
Ég hafði grun um að þetta hefði með loftflæði að gera, bæði vegna þess að mér finnst ég hafa lesið um svipað dæmi og þá var loftflæði orsökin, og vegna þess að í vikunni þá opnaði ég húddið og sá að k&n sveppurinn sem ég var með var dottinn af og lá á víðavangi í húddinu hjá mér (greinilega mikill kunnáttumaður sem setti hann í).
Ég prófaði að taka k&n sveppinn af og prófaði líka að aftengja loftflæðisskynjarann (held alveg örugglega að þetta hafi verið hann) en það virtist ekki breyta neinu, svo að núna er ég ráðalaus.
Dettur mönnum eitthvað í hug?
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 01:47
by GunniT
Tékkaðu á hvort það sé vatn þar sem kertinn eru.. lenti einhverntíman með þennan eða annan e36 325 sem ég var með þá var full af vatni þar ofaní.. Og svo annað þá fór súrefniskynjari í honum þá fór hann að ganga truntulega og virkaði ekki skít.. getur prófað að aftengja hann ef það sé ekkert vatn þar sem kertinn eru.. Ég myndi byrja á þessu
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 10:01
by gardara
Prófa að kíkja á kertin á eftir... Hvar er súrefnisskynjarinn annars?
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 10:08
by GunniT
hann er á pústinu undir bíl við girkassan sirka
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 10:12
by Zed III
Ef þetta klikkar myndi ég líka reyna að fá einhvern til að swappa tölvuni við þig. Það er einfalt test ef þú finnur eins tölvu, en þær eru gjarnar á að skemmast þar sem hólfið getur fyllst af regnvatni.
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 10:54
by Saxi
Hef lent í þessu með vatnið ofan á öftustu tveimur kertuum, furðulegt vandamál
Gæti verið að draga falskt loft, skoðaðu hosuna frá loftflæðiskynjara að inngjafarspjaldinu sérstaklega vel.
Ef kertin eru í lagi geturðu prufað að taka eitt og eitt háspennukefli úr sambandi til að athuga hvort þau eru að stríða þér. Gangurinn á að breytast þegar kefli er aftengt. Geri hann það ekki þá er keflið væntanlega bilað.
Það getur ansi margt komið til greina eins og mér lærðist fyrir nokkrum vikum þegar ég var að berjast við svipuð einkenni.
kv.
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 12:09
by gardara
Hvað er þessi gullitaði gæji þarna á myndinni? Og hvar á hann að vera... Hann liggur bara laus þarna hjá mér...

Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 12:21
by GunniT
Ég myndi halda að hann ætti að vera í loftsíuboxinu.. veit hinsvegar ekkert hvað hann gerir

Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 12:28
by ingo_GT
Einhver staða heyrði ég að hann ætti að vera í loftsíju boxinnu en hann er líka svona laus í mínu e36
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Mon 16. Mar 2009 15:01
by gardara
Fann út að þetta er víst hitamælir sem kemur stock í air boxinu á sumum e36..
OBDI E36's have a air temperature sensor that is installed in the stock air box. This sensor controls the heating of the throttle body at start up.
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Tue 17. Mar 2009 01:58
by Axel Jóhann
Háspennukefli!
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Wed 18. Mar 2009 16:37
by gardara
TB lásu af bílnum hjá mér í dag... Kom í ljós að þetta eru súrefnis og loftflæðisskynjarar....
13 Oxygen sensor
open circuit
41 Air-mass sensor
signal too low
Veit ekki hvort það sé eitthvað hægt að gera við þessa skynjara, eða hvort ég þurfi að kaupa nýja

Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Wed 18. Mar 2009 16:58
by GunniT
Tékkaðu fyrst á súrefnisskynjaranum.. þar sem það er ekki oem skynjari þá var hann lóðaður við orginal plöggið þannig ég myndi tékka á lóðningum til að byrja með
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Wed 18. Mar 2009 17:04
by GunniT
Svo held ég... er ekki viss.. að ef súrefnisskynjari er ekki að virka rétt þá geti komið villa á air flow dæmið..
Re: Leiðinlegur gangur í e36

Posted:
Wed 18. Mar 2009 17:24
by ingo_GT
Held að ég eigi súrefnis skynjara samt af 318 veit ekki hvort hann passi á þinn og síðan náturlega líka loftflæðis skynjara hef ekki hugmynd hvort þetta sje eins í þínum
