Page 1 of 1
Borun í vatnslás

Posted:
Thu 12. Mar 2009 09:26
by Zed III
daginn,
Ég var að lesa mig til um vatnslása á m50b25 og sá á einum stað mælt með því að bora lítið gat á vatnslásin (þar sem upp merkingin er á lásnum) þar sem þetta veldur því að það verður mun auðveldara að bleeda kerfið. Hefur einhver hér séð svona ráðleggingu áður og kannski testað þetta ?
Re: Borun í vatnslás

Posted:
Thu 12. Mar 2009 09:29
by Einarsss
heyrt af þessu en ekki látið verða af þessu. Sakar ekki að prófa amk
Re: Borun í vatnslás

Posted:
Thu 12. Mar 2009 09:32
by Zed III
Ég hef nefnilega verið að glíma við að fá ekki nógu mikinn hita í miðstöðina í lausaganginum og grunar að það sé annaðhvort vatnslásinn eða loft á kerfinu sem ég hef ekki náð út. Það er spurning um að slá tvær flugur í einu höggi og bora bara lítið gat í nýja vatnslásinn, en þá myndi ég ná öllu loftinu ef eitthvað er.
Re: Borun í vatnslás

Posted:
Thu 12. Mar 2009 09:35
by Einarsss
Það er svipað hjá mér, þyrftir að tjakka undir bílinn að framan og lyfta honum slatta og svo lofttæma eða (eins og ég ætla prófa) að fara í einhverja bratta brekku t.d niðrí kringlu og lofttæma þar þegar bílinn er orðinn vel heitur.
Re: Borun í vatnslás

Posted:
Thu 12. Mar 2009 11:33
by Aron Andrew
Gerðum þetta hjá Árna, man ekki eftir að sjá mun.
Re: Borun í vatnslás

Posted:
Thu 12. Mar 2009 23:57
by Lindemann
auðveldar kannski við að lofttæma kerfið, en sennilega verðu mótorinn líka lengur að hitna.
Re: Borun í vatnslás

Posted:
Fri 13. Mar 2009 06:26
by Zed III
skellti lásnum í bílinn í gær án þess að bora gat. Sennilegast hefðu hönnuðirnir sett gat ef það væri betra að hafa það.