Page 1 of 2

Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 10:07
by Rednex
Sælir

Bíllinn minn ákvað núna áðan að neyta að starta sér. Öll ljós, hljómtæki og annað rafmagnstengt virkar en startarinn neitar að snúast. Ég held ég sé að heyra hljóðið þegar hann skýtur fram tannhjólinu sem snýr svinghjólinu en svo ekkert meir.

Ég prófaði að fá start áðan hjá vini mínum og létum kaplana vera á í smá tíma, en allt gekk fyrir ekki. Ég var að vona að það hefði bara lekið útaf honum en mér sýnist á öllu að það sé eitthvað meira að...

Er einhver með góðar ráðleggingar svo ég nái nú kannski að komast heim úr skólanum :P ? Stjórnast startarinn af einhverju reylay-i eða er líklega eitthvað farið í honum ?

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 11:18
by sævaringi
kom mjög svipað dæmi fyrir mig um dagin, allt rafmagn virtist virka og einhva og þegar eg reyndi að starta honum kom mjög skrytið hljóð, pabbi dróg mig bara á stað og hann fór i gang og ekkert hefur skeð síðan alltaf farið bara i gang eins og ekkerthefði komið fyrir..... mjög skrytið

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 11:18
by Axel Jóhann
Hvernig bíll er þetta? En prufaðu að berja felgulyklinum í startarann og prófa aftur.

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 11:27
by JOGA
Eg segi slappur startari, slopp jord eda geymir.

Myndi byrja a thvi ad pussa upp tenginguna a jordini og setja sma koppafeiti.
Fa svo feita kapla og leyfa thessu ad ganga sma og lata a reyna.

Ef thetta virkar ekki tha kannski startarinn eda eitthvad sem eg hef ekki vit a :P

Afsakid skort a islenskum stofum :oops:

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 12:10
by Astijons
pottþétt tengingar á rafgeymi ...

samt þu reyndir að setja startkapla ... svo...
hmm...

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 12:12
by Rednex
Held startarinn sé orðinn eitthvað slappur. Getur varla hafa lekið útaf honum á 80 min...

Prófa jörðina og felgulykilinn á eftir 8)

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 12:29
by dabbiso0
Ef að þu heyrir greinilega að startarinn er að runna.. þa er þetta startarinn sjalfur. þ.e.a.s mekanikið er brenglað.

Ef að það heyrist ekkert. Þa eru það lelegar tengingar.. eða startarapungurinn er dauður
Image

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 13:11
by Aron Andrew
Bankaðu í punginn

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 13:32
by gstuning
Settu voltmæli yfir geyminn og mældu á meðan er startað,.
Sérð hvort að voltin droppi svo mikið að startarinn getur bara ekki dregið nóg rafmagn til að snúa vélinni.

Voltin ættu ekki að droppa niður fyrir 10volt cirka. Fer samt eftir vélinni.

Geymirinn ætti einni ekki að sýna minna enn 12.xx,

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 15:25
by Rednex
Ég prófaði áðan að banka í startarann sjálfan sem og segulspóluna sem skýtur honum fram.... ekkert gerðist. Á eftir að prófa tengingar og hvort spennan falli þegar startað er

Það heyrist "klikk" hljóð þegar ég reyni að starta en hann snýst ekki. Ég hélt að það væri startarinn að skjótast fram.

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 15:39
by GunniT
Ef hann er beinskiptur dragðu hann þá bara í gang...

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 16:37
by Rednex
Spennan á geyminum er 12,2 V og féll niður í 11,7V þegar ég reyndi að starta. Held ég prófi að losa rafgeymaskóna og hreinsa þá af spansgrænu (sem er þó lítið).

Annars bíð ég bara eftir pabba og fæ hann til að draga mig á eftir. :alien:

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Wed 25. Feb 2009 23:34
by Astijons
pff ég man nuna... á e36 minum gaf startarinn bara upp allt i einu !

og ég henti þeim bil ... og hann er á partasölu í keflavík... svo þú getur farið þangað fundið grænan e36 316... og fengið GLÆ nyjan startara... (hefur verið startað með svona 5 sinnum)
ef hann passar :D

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Thu 26. Feb 2009 00:37
by Jónki 320i ´84
Þetta er pottþétt ónýtur startari.

hann er að fá nægan straum greinilega miðað við þessar mælingar þínar
og því kemur lítið annað til greina.

Re: Vill ekki starta ! - Fastur uppi í skóla

PostPosted: Thu 26. Feb 2009 04:01
by ingo_GT
Humm meðan að þú nefnir að það heyrist klikk í startnum þá held ég að hann sje ekki ónyttur.

Prófaðu að hreinsa leiðslurnar á rafgeymirnum

Lenti einu sinni í því að félagi minn drekti rollunni sem við áttum og hún var sjálfskift og efti þetta þá neitaði hún að starta en heyrðist alltaf klikk í startanum en við hreinsuðum + og - á rafgeymirnum og hún fór strax í gáng :)