Bíllinn minn ákvað núna áðan að neyta að starta sér. Öll ljós, hljómtæki og annað rafmagnstengt virkar en startarinn neitar að snúast. Ég held ég sé að heyra hljóðið þegar hann skýtur fram tannhjólinu sem snýr svinghjólinu en svo ekkert meir.
Ég prófaði að fá start áðan hjá vini mínum og létum kaplana vera á í smá tíma, en allt gekk fyrir ekki. Ég var að vona að það hefði bara lekið útaf honum en mér sýnist á öllu að það sé eitthvað meira að...
Er einhver með góðar ráðleggingar svo ég nái nú kannski að komast heim úr skólanum







