Page 1 of 1
Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Tue 24. Feb 2009 23:56
by AntiTrust
Þetta ætlar ekkert að hætta...
Það sullast olía útum olíukvarðamælingargatið ef ég toga stöngina út á meðan bíllinn er í gangi.
Getur stíflaður hvarfi valdið slíkum "bakþrýsting" eða hvað það kallast? (Er ekki ennþá búinn að fara með hann í púst) eða er þetta meira mál en það, stimpilhringir, heddpakkning?
Svo er hjólalega að framan farin að gefa frá sér óhljóð, er nokkuð voðalegt vesen að skipta um þetta? Fannst þetta líta einfaldara út en ég er vanur, sem þýðir yfirleitt of gott til að vera satt.
Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 00:08
by Axel Jóhann
Já, hvarfinn örugglega fullur af skít eftir að síðasta túrbína fór hjá þér, og já það ætti ekki að vera mikið mál að skipta um hjólaleguna.
Mæli með því að þú hringir í Fálkann og kaupir legu þar.
Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 00:15
by AntiTrust
Takk f. það vinur, gott ef satt reynist, er hálfpartinn kominn með nóg af dýru veseni í bili.
Eru þær ódýrari í fálkanum, kosta 14k í TB?
Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 00:16
by Axel Jóhann
Athugaðu allavega í fálkanum, þeir eru oftast ódýrari, en getur verið að það sé ekki þannig með þessar.

Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 00:28
by Djofullinn
Öndunarsían á ventlalokinu getur sennilega líka valdið þessu
Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 00:41
by AntiTrust
Djofullinn wrote:Öndunarsían á ventlalokinu getur sennilega líka valdið þessu
Danni, af öllu því sem hefur verið að bílnum hefuru alltaf stungið uppá þessari síu

.. Væri samt voða gott ef þú myndir kíkja í eina kvöldstund eða svo og sýna mér hana samt

Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 01:28
by Astijons
Hvar fékkstu þennan bíl Hemmi? úr sjónum eða?

Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 01:34
by AntiTrust
Astijons wrote:Hvar fékkstu þennan bíl Hemmi? úr sjónum eða?

Kolaportinu

Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 02:34
by Dóri-
AntiTrust wrote:Djofullinn wrote:Öndunarsían á ventlalokinu getur sennilega líka valdið þessu
Danni, af öllu því sem hefur verið að bílnum hefuru alltaf stungið uppá þessari síu

.. Væri samt voða gott ef þú myndir kíkja í eina kvöldstund eða svo og sýna mér hana samt

http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=11&fg=15nr 8 á mynd, undir þessu er sía sem stíflast af sóti og allskonar viðbjóði, finn hana ekki á realoem, farðu í bogl og keyptu þessa síu og skiptu um hana.
Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Wed 25. Feb 2009 17:23
by SævarM
ef að olían er að sullast þarna út er líklega að blása ofan í pönnu hjá þér og geta það verið ónýtir hringir. þar sem það þarf svolítið mikinn óeðlilegan þrýsting til að ná að ýta olíunni þarna upp. oftast nær er það mjög vont ef að olíukvarði bara losnar upp.
og ef að öndunin er stífluð á ventlalokunum er það samt sem áður eitthvað meira að því að það á ekki að myndast svona mikill þrýstingur þar, getur prófað að taka öndunina af og sjá hvort það komi blástur úr önduninni í takt við sprengingar vélarinn, ef svo er myndi ég ath það betur t.d með að þjöppumæla.
Re: Olía sullast út um olíukvarðamæligat

Posted:
Sat 28. Feb 2009 18:20
by slapi
Myndi kíkja á síuna og ef að hann er með síu en ekki endurbættri gerðinni sem er skilja myndi ég skipta um hana samt sem áður.
Getur fengið innvolsið í öndunarhúsið og þarf ekki að kaupa lokið með öllu.
mjög líklegt.