Page 1 of 1

Kúplingaskipti í LSD

PostPosted: Sun 22. Feb 2009 00:58
by Svezel
Var að smella læsta drifinu mínu í e34 í dag með nýjum vökva og allar græjur en þetta dót læsir ekki rassgat :? Allaveganna er ekki hægt að spóla í hringi og þetta drasl sveik í fyrsta hringtorgi

Hefur einhver hérna reynslu eða upplýsingar um kúplingsskipti í LSD? Veit að það er hægt að kaupa nýja diska í þetta dót en finn ekkert info um svona skipti.

Kveðja einn svekktur spólari

Re: Kúplingaskipti í LSD

PostPosted: Sun 22. Feb 2009 13:08
by Aron Andrew
Óskar verslaði einhvertíman nýjar kúplingar man ég.

Re: Kúplingaskipti í LSD

PostPosted: Sun 22. Feb 2009 13:40
by Alpina
Finnst líklegt að það þurfi að herða/stilla þetta ,,,,, eða hvað,, til allskonar þunnar skífur/þynnur

veit að Hermann á helling af þessum þynnum

Re: Kúplingaskipti í LSD

PostPosted: Sun 22. Feb 2009 20:24
by maxel
Gunni GST sagði að það þyrfti ekkert að stilla þetta nema þú sért að færa drif í annað hús.
Frekar auðvelt að taka svona í sundur og held að það sé frekar viðráðanlega að setja þetta saman.
Bara finna herslugildin.

Re: Kúplingaskipti í LSD

PostPosted: Sun 22. Feb 2009 22:18
by gstuning
maxel wrote:Gunni GST sagði að það þyrfti ekkert að stilla þetta nema þú sért að færa drif í annað hús.
Frekar auðvelt að taka svona í sundur og held að það sé frekar viðráðanlega að setja þetta saman.
Bara finna herslugildin.


Ég sagði það af því að Sævar gerði það :)
Einnig er það eitthvað sem ég lærði hvort eð er.

Re: Kúplingaskipti í LSD

PostPosted: Mon 23. Feb 2009 10:11
by Svezel
Það þarf væntanlega að opna læsinguna til að skipta um kúplingarnar svo þetta er dálítið meira en bara að færa læsingu á milli.

Ég hef opnað ólæst drif og sett í það læsingu svo ég veit alveg að það er ekkert mál en ég hef ekkert opnað svona diskalæsingu.

Spurning að opna þetta bara og prófa, maður sýður þá draslið bara ef allt klikkar :lol:

Re: Kúplingaskipti í LSD

PostPosted: Mon 23. Feb 2009 10:25
by gstuning
Opnaðu þetta bara.

Getur kíkt á myndir af læsingum í E23 í ETK/REALOEM til að sjá exploded view
Því einu sinni voru seldir stakir partar.