Page 1 of 1

Hitavesen!

PostPosted: Sun 08. Feb 2009 11:36
by gretsky
Ég er búinn að vera í bölvuðu veseni með bílinn hjá mér undanfarið.

Það eru svona 1000km síðan heddið var tekið úr og allt yfirfarið af kistufelli. Hann hitaði sig eðlilega en eftir smá stund byrjar hann að ofhita sig. Miðstöðin blés bara köldu.

Ég skipti um vatnslás og þetta lagaðist. Gat ég keyrt bílinn eðlilega í viku. og gat keyrt hann alla leið til reykjavíkur sem eru um 300 km. Svo er hann byrjarðu að hita sig aftur. Lýsir sér nákvæmlega eins.

Einhverjar hugmyndir?

PostPosted: Sun 08. Feb 2009 11:43
by gstuning
Vantar kælivatn ?
Þarftu að halda áfram að fylla á?

PostPosted: Sun 08. Feb 2009 11:47
by Djofullinn
Lofttæma kælikerfið?

PostPosted: Sun 08. Feb 2009 11:51
by gretsky
Ég hef ekki þurft að filla á eftir að ég skipti um vatnslás.
Lofttæma kerfiið. Er það ekki skrúfan við hliðina á gatinu til að fylla á vatnskassan.

PostPosted: Sun 08. Feb 2009 13:21
by Helgi M
Búinn að athuga með leka á hosum og þessháttar? gæti eitthvað hafa gleymst við samsetninguna á þessu aftur... Svo auðvitað lofttæma kerfið...

PostPosted: Sun 08. Feb 2009 20:36
by DABBI SIG
líklega vantar að lofttæma kerfið og gæti jafnvel verið líka hosur að leka eða álíka...

Ef þetta er hvorugt þá er þetta líklegast vatnsdælan.
En þarftu ekkert að vera fylla á hann?

Re: Hitavesen!

PostPosted: Sun 08. Feb 2009 22:12
by Alpina
gretsky wrote:Ég er búinn að vera í bölvuðu veseni með bílinn hjá mér undanfarið.

Það eru svona 1000km síðan heddið var tekið úr og allt yfirfarið af kistufelli. Hann hitaði sig eðlilega en eftir smá stund byrjar hann að ofhita sig. Miðstöðin blés bara köldu.

Ég skipti um vatnslás og þetta lagaðist. Gat ég keyrt bílinn eðlilega í viku. og gat keyrt hann alla leið til reykjavíkur sem eru um 300 km. Svo er hann byrjarðu að hita sig aftur. Lýsir sér nákvæmlega eins.

Einhverjar hugmyndir?


Gæti verið vatnsdælan ,,

sem er úr plasti í mörgum m52B25

Mörg dæmi um það

PostPosted: Mon 09. Feb 2009 09:21
by gretsky
Ég þurfti gat bætt á hann 3 lítrum! Samt tiltörulega nýbúinn að setja á hann.

Allavega hann lagaðist við þetta og loftæmingu.. Nú er bara að finna lekann :S