bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Kraftleysi eftir bínuskipti? Blikkandi geymaljós? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=34839 |
Page 1 of 2 |
Author: | AntiTrust [ Sun 08. Feb 2009 02:01 ] |
Post subject: | Kraftleysi eftir bínuskipti? Blikkandi geymaljós? |
Var að setja nýja túrbínu í bimmann, 320D 2002 árg. Aldrei keyrt þennan bíl í 100% lagi, keypti hann bilaðann svo ég hef ekki alltof mikið til viðmiðunar, en mér finnst og er nokkuð viss um að bíllinn sé ekki að skila sínu. 0-100 tími er langt yfir factory tíma, og hann erfiðar í allt yfir 120-130 km/klst. Ég er búinn að skipta um bínu, það pústar örlítið út hjá pústgrein en ekki svo að það geti valdið slíkum aflmissi, hefði ég haldið. Ég skipti um olíusíu og olíu í leiðinni. Getur olía í pústi valdið þessu, þar sem það er ennþá að brenna olía síðan síðasta bína fyllti allt af olíu, stíflaður hvarfakútur eða annað? Gæti þetta verið öndunarbox/sía á vél? Allar hugmyndir og ábendingar vel þegnar, ætla að reyna að klóra mig framúr þessu sjálfur. ***EDIT Nýtt vandamál, eftir að hafa keyrt bílinn í 1-2 daga vandræðalaust fór geymaljósið að blikka, ekki reglulega, stundum virðist það rpm tengt en stundum ekki. Lélegt geymasamband eða ónýt kol/alternator? |
Author: | Grétar G. [ Sun 08. Feb 2009 02:26 ] |
Post subject: | |
Veit ekkert um þetta! En getur verið að það þurfi að endustilla eitthvað í tölvu.. bíllinn er kannski í einhverju limp mode eða eitthvað? Bara wild gess ![]() |
Author: | AntiTrust [ Sun 08. Feb 2009 02:32 ] |
Post subject: | |
Þá hefði ég nefnilega haldið að vélartölvuljós eða annað myndi kvikna, en það er ekkert í mælaborðinu sem gefur vélarbilun eða limp mode til kynna. Síðast þegar ég vissi var líka talsvert lækkað rev limit í limp mode, og það er ekkert svoleiðis í gangi, redline-ar alveg vandræðalaust. |
Author: | slapi [ Sun 08. Feb 2009 08:08 ] |
Post subject: | |
AntiTrust wrote: Þá hefði ég nefnilega haldið að vélartölvuljós eða annað myndi kvikna, en það er ekkert í mælaborðinu sem gefur vélarbilun eða limp mode til kynna. Síðast þegar ég vissi var líka talsvert lækkað rev limit í limp mode, og það er ekkert svoleiðis í gangi, redline-ar alveg vandræðalaust.
Redline-ið lækkar ekkert. ýmis gildi verða bara föst , loftmagn , kælivatnshiti og annað. |
Author: | gstuning [ Sun 08. Feb 2009 10:53 ] |
Post subject: | |
Frekar líklegt að hvarfinn er stíflaður og er í raun "minnkun" á pústinu þínu, Pústleki hjá pústgrein er líka ekki gott fyrir túrbínuna |
Author: | AntiTrust [ Sun 08. Feb 2009 13:40 ] |
Post subject: | |
slapi wrote: Redline-ið lækkar ekkert.
ýmis gildi verða bara föst , loftmagn , kælivatnshiti og annað. Hvernig kemst ég að því hvort hann er í limp mode eða ekki? Tengja við tölvu? |
Author: | slapi [ Sun 08. Feb 2009 14:24 ] |
Post subject: | |
lang best að lesa af honum og sjá hvort eitthvað sé að. |
Author: | Dóri- [ Sun 08. Feb 2009 23:05 ] |
Post subject: | |
Það segir sig alveg þokkalega sjálft að kvarfakúturinn er handónýtur eftir að hafa bæði kveiknað í honum og stappfyllst af olíu, farðu með bílinn til BJB eða Einars áttavilta, láttu hann taka hvarfann og setja túpu undir bílinn, færð auka hestöfl og það þarf ekki að vera hvarfakútur í diesel bíl. |
Author: | AntiTrust [ Sun 08. Feb 2009 23:27 ] |
Post subject: | |
Dóri- wrote: Það segir sig alveg þokkalega sjálft að kvarfakúturinn er handónýtur eftir að hafa bæði kveiknað í honum og stappfyllst af olíu, farðu með bílinn til BJB eða Einars áttavilta, láttu hann taka hvarfann og setja túpu undir bílinn, færð auka hestöfl og það þarf ekki að vera hvarfakútur í diesel bíl.
Hehe, maður áttar sig ekki alltaf á því augljósa. Fæ ég s.s skoðun án hvarfa? |
Author: | thisman [ Sun 08. Feb 2009 23:30 ] |
Post subject: | |
Getur það ekki hreinlega verið ástæðan fyrir að það pústar meðfram pústgreininni - að þetta hafi bara ekki komist nógu auðveldlega í gegnum hvarfakútinn og þrýstingurinn leitar út? Nú hef ég ekki hundsvit á þessu en finnst þetta hljóma svo hrikalega vel hjá mér. ![]() |
Author: | Dóri- [ Mon 09. Feb 2009 01:37 ] |
Post subject: | |
AntiTrust wrote: Dóri- wrote: Það segir sig alveg þokkalega sjálft að kvarfakúturinn er handónýtur eftir að hafa bæði kveiknað í honum og stappfyllst af olíu, farðu með bílinn til BJB eða Einars áttavilta, láttu hann taka hvarfann og setja túpu undir bílinn, færð auka hestöfl og það þarf ekki að vera hvarfakútur í diesel bíl. Hehe, maður áttar sig ekki alltaf á því augljósa. Fæ ég s.s skoðun án hvarfa? jább ég fór sérferð niðrá skoðunarstöð þegar minn sprakk í tætlur. var ekki alveg að tíma því að kaupa nýjan ![]() held að ég hafi borgað 15 eða 20þ fyrir 2og hálfstommu downpipe og pípu þegar ég lét gera þetta. rann í gegnum skoðun. |
Author: | AntiTrust [ Tue 10. Feb 2009 01:35 ] |
Post subject: | |
Jæja, alternatorinn / kolin fóru í gærkvöldi svo það var farið í að rífa hann úr í kvöld, ekki eins auðvelt og maður hefði haldið en jæja.. Komst hinsvegar að því þegar ég var að rífa ýmislegt frá að það var olíubrák í soggreininni og í intercoolerhosunum beggja megin. Ég þarf svosem engann snilling til að segja mér að þetta sé ekkert hollt og gott, en þetta er bara brák eftir að síðasta bína fór, en pælingin er hvort það sé þess virði að taka soggreinina bara upp og skipta um pakkningar og annað í leiðinni, eða hvort ég eigi bara að láta þetta brenna upp? Er ég að skemma e-ð eða minnka afköst? Getur olían komist í intercoolerinn og blockerað loftflæði af e-rju viti? |
Author: | pes1 [ Tue 10. Feb 2009 10:44 ] |
Post subject: | |
Ef hann er hauglatur í starti gæti verið skítugur air flow meter. Eins myndi ég kanna hvort EGR ventillinn sé ekki kakkstíflaður. |
Author: | Dóri- [ Tue 10. Feb 2009 12:17 ] |
Post subject: | |
já og öndunarsían sem er staðsett ofaná ventlalokinu. |
Author: | ValliFudd [ Tue 10. Feb 2009 17:06 ] |
Post subject: | |
Úff, var að spa í að versla þennan, djöfull er ég feginn að hafa sleppt því ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |