Page 1 of 1

Biluð miðstöðvarmótstaða í e36. Hvernig lýsir bilunin sér?

PostPosted: Mon 02. Feb 2009 23:05
by Sezar
Er með e36 með tölvumiðstöð sem er að hrekkja mig og er að verða geðveikur á að finna bilunina.

Sumir segja mótstaðan eða stjórntölvan aðrir miðstöðvarmótorinn,,,og það er hellað að skipta um hann.
Bilunin hjá mér er þannig, að miðstöðin er alltaf á botnsnúning og þó að ég slökkvi þá er hún samt á fullu.
Og stundum virkar hún normally....ekki oft þó.

Hefur einhver lent í því sama?

PostPosted: Mon 02. Feb 2009 23:22
by Einarsss
ég myndi skjóta á mótstöðuna... getur varla verið mótorinn ef hann blastar á fullu

PostPosted: Mon 02. Feb 2009 23:24
by saemi

PostPosted: Tue 03. Feb 2009 07:55
by Svessi
Miðað við lýsinguna hjá þér er þetta miðstöðvarmótstaðan (blower resistor).

Ég lenti í þessu með 535iA E34 bílinn hjá mér. Miðstöðin var bara annaðhvort á fullu eða alveg af. Og útaf því að mótstaðan í bílnum hjá mér er svokallað sverð sem kostaði um 80 þús kr í B&L þá var ég nú ekkert að flýta mér að kaupa það og ég uppgötvaði það of seint að þegar mótorinn var í gangi hjá mér með bilaða mótstöðuna þá var eins og hann væri á yfirsnúning, og á endanum eyðilagðist mótorinn líka.