bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Gangtruflanir á hægum snúnin, M40
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=34686
Page 1 of 2

Author:  Rednex [ Fri 30. Jan 2009 13:53 ]
Post subject:  Gangtruflanir á hægum snúnin, M40

Sælir

Bíllinn er byrjaður að haga sér hálf skringilega. Það lýsir sér þannig að hann hefur ekkert afl á lágum snúningi, 1000-25/3000rpm. Yfirleitt kikkar hann aftur inn ef hann kemst á hærri snúning. Yfirleitt gengur hann líka hægaganginn nokkuð vel en þó með undantekningum. Svo allt í einu hættir hann þessu og gengur fínt :?

Ég held hann sé að kveikja á öllum strokkum en er þó ekki 100% viss. Því datt mér í hug að loftflæðiskynjarinn væri orðinn eitthvað stífur eða snerturnar á honum tærðar. Einnig datt mér í hug að þetta tengdist eitthvað nýju bensíndælunni sem er í bílnum, reyndar notuð, en bíllinn var aðeins byrjaður á þessu áður en hún kom í hann.

Kannast einhver við svona vandamál ?

Author:  burgerking [ Fri 30. Jan 2009 14:30 ]
Post subject: 

Gæti verið að taka inn falskt loft einhversstaðar? ég myndi checka hvort það væri nokkuð rifa á einhverri af loftslöngunum :) annars er ég ekki viss..

Author:  Axel Jóhann [ Fri 30. Jan 2009 20:16 ]
Post subject: 

Háspennukefli.

Author:  Rednex [ Sun 01. Feb 2009 20:29 ]
Post subject: 

Ef háspennukeflið væri farið ætti hann bara að deyja, right ? Hann gengur alveg en bara eins og vitlaus loft/bensín blanda sé málið. Núna áðan var hann meira að segja byrjaður að sprengja hjá mér :? Hægagangurinn var líka byrjaður að vera óstöðugur.

Author:  Stebbtronic [ Sun 01. Feb 2009 20:54 ]
Post subject: 

Axel Jóhann wrote:
Háspennukefli.

Bingo :wink:

Author:  Rednex [ Sun 01. Feb 2009 22:56 ]
Post subject: 

Jæja, þá er ég búinn að einangra vandamálið. Vélin gengur mjög fínt en þó bara ef súrefnis/lambda skynjarinn er ekki tengdur :!:

Nú kemur það skrítna. Skynjarinn er nýr síðan í sumar en samt var gúmmíð upp við tengilinn orðið morknað og rifið. Ég tók þetta í sundur, gerði nýja einangrun og spreyjaði contact-spreyi yfir öll tengin. Það hjálpaði samt ekkert til.

Ég athugaði einnig hvort relayið fyrir skynjarann var ónýtt en það virtist virka sem skildi. Viðnámið í rásinni að skynjaranum var bara 11 ohm, veit ekki hvort það er eitthvað nálægt því sem það á að vera :?

Er ekki bara málið að fá annan skynjara og gá hvort bíllinn lagist við það... ef ekki þá rásina o.s.frv.

Author:  birkire [ Mon 02. Feb 2009 01:35 ]
Post subject: 

Búinn að tjekka vel og vandlega á öllum vacuum slöngum ?

Author:  Rednex [ Mon 02. Feb 2009 11:04 ]
Post subject: 

Ég leit nú bara létt yfir það í gær, engar lausar. Ertu ekki annars að meina slöngurnar í hægagangsskynjarann og það, sem er tengt við skolloftshliðina ?

Hvaða áhrif hefur samt súrefnisskynjarinn á vaccumslöngurnar ?

Author:  Bui [ Mon 02. Feb 2009 12:43 ]
Post subject: 

segi bara það sem var sagt við mig, M20 í staðinn :D

Author:  300+ [ Mon 02. Feb 2009 13:57 ]
Post subject: 

Rednex wrote:
sem er tengt við skolloftshliðina ?

Hehe langt síðan maður hefur heyrt þetta, hljómar eins og sextugur vélstjóri, er kannski skolloftsblásari á bílnum þínum?

Author:  Hlynzi [ Mon 02. Feb 2009 15:01 ]
Post subject: 

Rednex wrote:
Jæja, þá er ég búinn að einangra vandamálið. Vélin gengur mjög fínt en þó bara ef súrefnis/lambda skynjarinn er ekki tengdur :!:

Nú kemur það skrítna. Skynjarinn er nýr síðan í sumar en samt var gúmmíð upp við tengilinn orðið morknað og rifið. Ég tók þetta í sundur, gerði nýja einangrun og spreyjaði contact-spreyi yfir öll tengin. Það hjálpaði samt ekkert til.

Ég athugaði einnig hvort relayið fyrir skynjarann var ónýtt en það virtist virka sem skildi. Viðnámið í rásinni að skynjaranum var bara 11 ohm, veit ekki hvort það er eitthvað nálægt því sem það á að vera :?

Er ekki bara málið að fá annan skynjara og gá hvort bíllinn lagist við það... ef ekki þá rásina o.s.frv.

Held að þú ættir að skoða vacuum þéttleika betur, en líka skynjarann, fáðu annan skynjara og sjáðu hvað skeður.
Einnig myndi ég prófa að skipta út jarðtengi snúrunni frá boddý útí vél, slípa vel upp contactinn fyrir hana og helst setja nýja (þessi þykka sem er undir bílnum), getur allavegana ekki gert bílinn verri með því :P

Author:  Rednex [ Wed 04. Feb 2009 11:05 ]
Post subject: 

300+ wrote:
Rednex wrote:
sem er tengt við skolloftshliðina ?

Hehe langt síðan maður hefur heyrt þetta, hljómar eins og sextugur vélstjóri, er kannski skolloftsblásari á bílnum þínum?

Ég er nú bara svo vanur að tala um skolloft og afgas því flestir aðrir í kringum mig segja þetta svona. Tölum líka um strokklok, bullur og margt fleira :P

Kannski búinn að átta þig á því núna en ég er einmitt að læra vélstjórann 8)

p.s. það er enginn skolloftsblásari í bílnum. Er líka ekki frekar talað um afgasblásara ? Skolloftsblásarar eru held ég bara í tvígengisvélum (rafmagnsdrifnar) til að hjálpa þeim fyrst þegar þær eru settar í gang.

Author:  Axel Jóhann [ Wed 04. Feb 2009 12:05 ]

Bæði gildir, en skoðaðu hægagangs nemann vel (ICV), það er. Að hreinsa hann vel með carb cleaner.

Author:  300+ [ Wed 04. Feb 2009 16:25 ]
Post subject: 

Rednex wrote:
300+ wrote:
Rednex wrote:
sem er tengt við skolloftshliðina ?

Hehe langt síðan maður hefur heyrt þetta, hljómar eins og sextugur vélstjóri, er kannski skolloftsblásari á bílnum þínum?

Ég er nú bara svo vanur að tala um skolloft og afgas því flestir aðrir í kringum mig segja þetta svona. Tölum líka um strokklok, bullur og margt fleira :P

Kannski búinn að átta þig á því núna en ég er einmitt að læra vélstjórann 8)

p.s. það er enginn skolloftsblásari í bílnum. Er líka ekki frekar talað um afgasblásara ? Skolloftsblásarar eru held ég bara í tvígengisvélum (rafmagnsdrifnar) til að hjálpa þeim fyrst þegar þær eru settar í gang.

Það er ekki talað um skolloftsblásara nema bara í tvígengisvélum, hvort sem þær eru með slaufuskolun eða þverskolun því á N/A tvígengis nýtist aldrei öll slaglengd bullunnar í skolunina(útaf hæðarmuninum á portunum) og verður hún því alltaf ófullkomin, en þaðan er nafnið "skolloftsblásari" einmitt komið, en tilgangur hans er að reka út þær leifar af afgasinu sem eftir eru í brunarýminu, ekki til að mynda eitthvað boost til að ná meira afli. En það er ekki talað um afgasblásara nema að blásarinn sé jú afgasknúinn, en það er t,d ekki blásarinn á gömlu Ölphunni sem að þú hefur eflaust kynnst. Þar er þetta tvöfaldur tvívirkur strokkur sem er tímaður þannig inn á vélina að þegar bullan í brunarýminu er á leið niður í lok aflslags þá opnast fyrst fyrir útbl. portið og svo fyrir skl.portið og um leið og það byrjar að opnast smá rifa á skl.portinu þá byrjar bullan í skolloftsblásaranum að fara upp og rekur þannig brunaleifarnar út, þá er bullan í skolloftsblásaranum komin í toppstöðu þegar skolloftsportið lokast og bullan í strokknum á leið upp í þjappslagi.

Láttu svo Hlöðver ekki grilla of mikið í þér, maðurinn er asni.

Author:  Rednex [ Thu 05. Feb 2009 00:26 ]
Post subject: 

Jebb, svona er þetta víst.

En engar áhyggjur af Hlöðveri, hann er ágætis karl. Kann sína kælitækni :wink:
það var reyndar Einar Gunnars sem kenndi mér vélstjórnina.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/