bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

*BÚINN Í VIÐGERÐ* BMW e46 325i '04 | TAKK x5power
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=34309
Page 1 of 1

Author:  Jónas Helgi [ Wed 14. Jan 2009 00:59 ]
Post subject:  *BÚINN Í VIÐGERÐ* BMW e46 325i '04 | TAKK x5power

Ég fór með bílinn í smurningu í dag og þeir lyftu upp bílnum og sáu leka hjá gírkassanum.
Hann segir að þetta sé leki/smit útfrá pakkdós aftast í kassanum, ég veit lítið sem EKKERT um þetta því ég skoðaði þetta ekki sjálfur, þeir gátu ekki sett hann uppá lyftu þegar ég náði í bílinn.
Þeir sögðust ætla að gera þetta fyrir mig næsta þriðjudag og þetta væri í kringum 15-20Þúsund (EF ÞAÐ VÆRI BARA ÞETTA AÐ). Þetta er toyota verkstæði sem ég hef alltaf farið með alla bílana mína í smurningu þarna en þegar það kemur að svona þá er mér ekkert vel við það þó þetta séu fagmenn.
Getur einhver hérna með lyftu og þekkingu sem getur gert þetta fyrir mig fyrir minna eða svipað verð, skipta um eina pakkdós og setja olíu á kassa+drif :)

Einkapóstur nægir.
Takk kærlega

Author:  Einsii [ Wed 14. Jan 2009 08:24 ]
Post subject: 

Er 15-20 þúsund ekki bara mjög gott verð fyrir svona aðgerð ?

Author:  srr [ Wed 14. Jan 2009 08:37 ]
Post subject: 

Amk er nógu dýrt að láta skipta bara um oliu á kassa og drifi.
Með pakkdósarskiptin....
Þarf þá ekki að losa púst og drifskapt frá?
Þetta er mjög sanngjarnt verð ef það er 15-20.000 kr fyrir þetta allt, amk að mínu mati.

Author:  Jónas Helgi [ Wed 14. Jan 2009 12:55 ]
Post subject: 

Einsii wrote:
Er 15-20 þúsund ekki bara mjög gott verð fyrir svona aðgerð ?


15-20 Þúsund bara að skipta um headpakkninguna. Þeir töldu að það væri hægt að komast beint að þessu, pústið væri ekki fyrir.

Author:  Axel Jóhann [ Wed 14. Jan 2009 12:59 ]
Post subject: 

Astro wrote:
Einsii wrote:
Er 15-20 þúsund ekki bara mjög gott verð fyrir svona aðgerð ?


15-20 Þúsund bara að skipta um headpakkninguna. Þeir töldu að það væri hægt að komast beint að þessu, pústið væri ekki fyrir.





15-20 þúsund er náttúrulega BARA gott verð fyrir heddpakkningarskipti. :lol:

Author:  srr [ Wed 14. Jan 2009 13:05 ]
Post subject: 

Axel Jóhann wrote:
Astro wrote:
Einsii wrote:
Er 15-20 þúsund ekki bara mjög gott verð fyrir svona aðgerð ?


15-20 Þúsund bara að skipta um headpakkninguna. Þeir töldu að það væri hægt að komast beint að þessu, pústið væri ekki fyrir.





15-20 þúsund er náttúrulega BARA gott verð fyrir heddpakkningarskipti. :lol:

Árni Björn yrði MEGA SVEKKTUR ef þetta væri rétt :lol:

Author:  Hreiðar [ Wed 14. Jan 2009 13:09 ]
Post subject: 

15-20 þus er mjöög gott verð, vonandi að það sé ekki meira að..

Author:  Jónas Helgi [ Wed 14. Jan 2009 13:47 ]
Post subject: 

Hreizi wrote:
15-20 þus er mjöög gott verð, vonandi að það sé ekki meira að..


Þá væri ég mega svektur, borgaði 17Þúsund fyrir smurningu með Móbíl 1 olíu í gær, þetta er BARA blóðpeningur núna! :D

En hvernig olíu eru menn að fýla á 325i Manual á kassann og drifið ? Ætla að kaupa hana sjálfur, vill ekki fá einhverja universial olíu.

BTW ég veit ekki afhverju ég sagði HEADPAKKNINGAR skipti, því það er bara RANGT, þetta er pakkdós aftaná gírkassanum, ég afsaka :oops:

Author:  Hlynur___ [ Wed 14. Jan 2009 16:36 ]
Post subject: 

já einmitt því að bara pakkningasettið kostar um 15.000 :lol:

Author:  Jónas Helgi [ Wed 14. Jan 2009 17:48 ]
Post subject: 

Hlynur___ wrote:
já einmitt því að bara pakkningasettið kostar um 15.000 :lol:


Hehe einmitt ;) ég sagði headpakkning vegna ég var nýbúinn að lesa þráðinn hérna af stráknum sem ætlaði að skipta um headpakkninguna á þess að losa headdið. :oops:

Author:  Zed III [ Wed 14. Jan 2009 18:15 ]
Post subject: 

Astro wrote:
Hlynur___ wrote:
já einmitt því að bara pakkningasettið kostar um 15.000 :lol:


Hehe einmitt ;) ég sagði headpakkning vegna ég var nýbúinn að lesa þráðinn hérna af stráknum sem ætlaði að skipta um headpakkninguna á þess að losa headdið. :oops:


Correction, aulanum sem skildi ekki commentið um að það væri hægt :wink:

Author:  Jónas Helgi [ Sat 17. Jan 2009 17:13 ]
Post subject: 

Hr. x5power hjá TB gerði þetta fyrir mig áðan, kærar þakkir.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/