bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Lakkviðgerðir https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=34188 |
Page 1 of 1 |
Author: | jens [ Thu 08. Jan 2009 11:06 ] |
Post subject: | Lakkviðgerðir |
Ég er að laga bíl sem ég á og langar að fræðast aðeins um lakkviðgerðir. Þegar búið er að vinna á riðinu og búið er að setja sérstakt riðbreyti efni er þá á ekki gott að grunna sárið áður en farið er að sparsla, hvaða grunn er best að nota. Riðvarnargrunn eða eru í lagi að nota sama grunn og notaður er undir lakk. Mig langar að fræðast um þegar sprautað er yfir gamalt lakk er nóg að matta gamla lakkið eða þarf að grunna yfir áður en nýtt lakk er sett á. Annað sem væri gott að fá svör við er að þegar búið er að sprauta litnum hvað er æskilegt að líði langur tími á milli lakks og glæru. Tekið skal fram að þetta er ekki bíll sem fer á neinar sýningar og að aðstæður eru í kringum 15°c þar sem sprautað er. Góðar stundir. |
Author: | JonHrafn [ Thu 08. Jan 2009 12:12 ] |
Post subject: | |
Vona þér sé sama þótt ég bæti við einni spurningu, en ég er í nákvæmlega sömu hugleiðingum og þú nema minn er verr farinn. Þarf að sjóða í skemmdir. Maður hefur heyrt margar útgáfur af því hvernig menn vilja sjóða, sumir vilja setja alveg yfir, borga göt fyrir suðuna í samskeitin, allar útgáfur, með hverju mæla menn? |
Author: | Helgi M [ Thu 08. Jan 2009 18:39 ] |
Post subject: | Re: Lakkviðgerðir |
jens wrote: Ég er að laga bíl sem ég á og langar að fræðast aðeins um lakkviðgerðir.
Þegar búið er að vinna á riðinu og búið er að setja sérstakt riðbreyti efni er þá á ekki gott að grunna sárið áður en farið er að sparsla, hvaða grunn er best að nota. Riðvarnargrunn eða eru í lagi að nota sama grunn og notaður er undir lakk. Mig langar að fræðast um þegar sprautað er yfir gamalt lakk er nóg að matta gamla lakkið eða þarf að grunna yfir áður en nýtt lakk er sett á. Annað sem væri gott að fá svör við er að þegar búið er að sprauta litnum hvað er æskilegt að líði langur tími á milli lakks og glæru. Tekið skal fram að þetta er ekki bíll sem fer á neinar sýningar og að aðstæður eru í kringum 15°c þar sem sprautað er. Góðar stundir. Mæli með að þú notir epoxy grunn, það er mjög sterkur grunnur sem hefur líka mjög góða viðloðun. Ef að gamla lakkið er "vel" með farið, það er að segja lítið af ójöfnum og öðru þá er nóg að matta það, einnig gott að setja fylligrunn þá yfir þær minnstu ójöfnur, ef að það er mikill litamismunur á lakkinu sem er á bílnum og því sem þú ert að fara að setja á "svart/hvítt" skaltu setja sama grunn yfir allt svæðið sem verður málað, annars gæti orðið góður litamismunur. Ef þú notar vatnslakk er nóg að það sé orðið alveg matt áður en þú setur glæru á, líka gott að fylgja "loftunartíma" sem framleiðandi mælir með, en þar sem þú ert sirka 7 gráðum undir heppilegum hita þá tekur það lengri tíma hjá þér að þorna. Ef þú notar acrýl lakk skaltu vera rúmlega loftunartímann sem framleiðandinn mælir með. Einnig ef að þetta verður "bílskúrsmálað" þá er best fyrir þig að hafa alltaf gólfið blautt til að binda niður rykið þar sem það getur farið á sveimi þá þegar þú ert að bíða á milli loftunartíma jafnvel sem væri verra. |
Author: | Dóri- [ Thu 08. Jan 2009 22:37 ] |
Post subject: | |
JonHrafn wrote: Vona þér sé sama þótt ég bæti við einni spurningu, en ég er í nákvæmlega sömu hugleiðingum og þú nema minn er verr farinn. Þarf að sjóða í skemmdir.
Maður hefur heyrt margar útgáfur af því hvernig menn vilja sjóða, sumir vilja setja alveg yfir, borga göt fyrir suðuna í samskeitin, allar útgáfur, með hverju mæla menn? Ég geri þetta þannig að ég sker úr, grunna sárið vel 2 umferðir, set plötu sem er aðeins stærra en gatið með slatta af kítti á, svo er þetta punktað, grunnað, svo troðið meira af kítti og svo grunnað og svo tectyl. það er ekki sniðugt að heilsjóða í stór göt, þar sem málmurinn skreppur saman. Er að tala um göt sem maður gerir við innanfrá eins og í skotti. |
Author: | Gummco [ Thu 08. Jan 2009 22:55 ] |
Post subject: | |
ekki nota ryðbreyti,er alls ekki virka,Epoxy best og láta þorna yfir nótt er gott ![]() mundu að kraftsmenn eru með 15 prósent afslátt hjá Málningarvörum(sikkens) kv Gummi |
Author: | JonHrafn [ Thu 08. Jan 2009 23:27 ] |
Post subject: | |
Ryðbreytir, er það stuffið sem á að stoppa rið? |
Author: | gunnar [ Thu 08. Jan 2009 23:42 ] |
Post subject: | |
JonHrafn wrote: Ryðbreytir, er það stuffið sem á að stoppa rið?
Nei fjandinn hafi það ![]() |
Author: | Helgi M [ Fri 09. Jan 2009 00:40 ] |
Post subject: | |
Gummco wrote: ekki nota ryðbreyti,er alls ekki virka,Epoxy best og láta þorna yfir nótt er gott
![]() mundu að kraftsmenn eru með 15 prósent afslátt hjá Málningarvörum(sikkens) kv Gummi Ekki vissi ég af afslættinum... en nýti mér hann þó pottþétt núna ![]() |
Author: | jens [ Fri 09. Jan 2009 10:55 ] |
Post subject: | |
Afhverju ekki að nota riðefni ? |
Author: | raxions [ Wed 14. Jan 2009 17:29 ] |
Post subject: | |
Hafiði einhverja hugmynd um hversu mikið kostar að laga ryðblett á bíl sem er sirka 2 títuprjónshausar í þvermál? Er orðinn frekar hræddur um að þetta skemmi meira út frá sér innan skamms, verð að fara að gera eitthvað í þessu. Er best að rúnta bara milli lakkverkstæða og sjá hvað þetta kostar? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |