Page 1 of 1

Gufa úr vatnskassa ?

PostPosted: Mon 29. Dec 2008 22:26
by hemmih
Sælir meðlimir.

Það er alltaf e-ð smá vandamál með þennan blessaða vatnskassa í bílnum mínum.
Málið er það að ég lét skipta um vatnsdælu í honum um daginn og nuna kemur alltaf smá gufa frá vatnskassanum þegar það er búið að keyra á honum í dágóða stund, en ekkert er gefið upp í tölvu og hitamælirinn á sínum stað og hann hitar sig alveg venjulega.

Þetta skéði líka áður en ég skipti um vatnsdæluna og þá fór ég með hann uppí TB og þeir sögðu að það þyrfti bara lofttæma kassann sem þeir gerðu, það virkaði ágætlega í viku þá byrjaði þetta aftur, svo núna er ég búinn að lofttæma vatnskassann en enn skéður þetta.

Hafið þið einhverja hugmynd um hvað þetta gæti verið ?

PostPosted: Mon 29. Dec 2008 22:42
by jon mar
örugglega bara farið að smita á kælielementinu bara og þá sérðu uppgufunina þegar það smitar út.

PostPosted: Tue 30. Dec 2008 12:52
by Angelic0-
jon mar wrote:örugglega bara farið að smita á kælielementinu bara og þá sérðu uppgufunina þegar það smitar út.


x2

PostPosted: Wed 31. Dec 2008 00:31
by hemmih
og er það e-ð major mál ?

PostPosted: Wed 31. Dec 2008 00:49
by Lindemann
hemmih wrote:og er það e-ð major mál ?


sennilega ekki, það þarf bara að komast að því hvað það er sem er að leka.

PostPosted: Thu 01. Jan 2009 16:42
by aronjarl
eitthvað smit á elementinu á vatskassanum.

Getur prufað efni sem fæst að ég held í N1 (Stop Leak) efni sem þú setur á kælikerfið og það stoppar á stöðum sem lekinn er.

Ég prufaði svona einhvertiman, það virkaði ágætlega.


Getur allavegana prófað þetta áður en þú skiptir um vatnskassa. :wink: