maxel wrote:Veit ekki afhverju þú breyttir henni í þetta en ekki "Hvernig losar maður stýrisenda"
En hvað um það, pabbi kom með 2x rörtangir og þetta var snöggt af, þakka kærlega þetta hint frá þér Gunni...
Þarf bara að fara kaupa nýjar rær á morgun og þá er ég good to go í bili.
Það má vera að þú vitir það ekki, en ástæðan er þessi:
Að það sé "vesen með stýrisenda" getur þýtt margt annað. T.d. er algengt að vandamál sé að losa kóninn af eftir að róin hefur verið losuð. Það er eiginlega algengara en að ekki sé hægt að skrúfa hann af gengjunum. Svo er líka til að hlaup sé í kúlunni og það er fullt af atriðum öðrum sem geta tengst þessu.
Það er bara miklu betra að tilgreina vandamálið nánar til að fá betri svör og létta fólki yfirferðina hér á spjallinu.