Page 1 of 2

vesen á x5

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 14:25
by arni
Ég er með x5 2002 ekinn 130þ. og hann er farinn að ganga illa.

Það kveiknuðu gul ljós í mælaborðinu um daginn: EML, guli þríhyrninigurinn í miðjunni, abs ljósið og bremsudiskaljósið. En bíllinn var síðan eðlilegur næst þegar ég kveikti á honum. En svo kveiknuðu þessi ljós reglulega.

Fór síðan með bílinn í B&L og það var lesin tölvan í honum. B&L sérfræðingurinn sagði að það væri gat á þessari lofthosu og ég þyrfti að skipta um hana. Ég keypti hana en er ekki búinn að geta skipt um hana.

Síðan versnaði bíllinn núna á föstudaginn, ég hélt að það væri bara útaf því að það var svo kalt. En síðan var hann allveg hrikalegur í gær, gékk varla hægagang, drap á sér og þvílíkur truntugangur og svo kviknaði gult ljós með tannhjóli(sem þýðir að sjálfskiptingin er farin í eitthvað emergency mode).

Mig vantar einhver til að kíkja á þetta og skipta um þessa hosu.

Re: Hjálp! Mig vantar bifvélavirkja/bmw kall

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 14:49
by Saxi
Þessi lofthosa gæti verið rótin að öllum þessum vandamálum, drífðu í að skipta um hana og eftir það er hægt að bilanagreina frekar ef eitthvað er að.

Hvaða vél er í þessum bíl?

Re: Hjálp! Mig vantar bifvélavirkja/bmw kall

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 14:51
by arni
Saxi wrote:Þessi lofthosa gæti verið rótin að öllum þessum vandamálum, drífðu í að skipta um hana og eftir það er hægt að bilanagreina frekar ef eitthvað er að.

Hvaða vél er í þessum bíl?


Það er 3.0 bensín.
Ég hef hvorki getu né aðstöðu til að skipta um þetta, mig vantar einhvern sem getur gert það fyrir mig.

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 15:20
by sh4rk
Sko er þetta ekki V8 vél í bilnum??? Því að ég lenti í því á bilnum minum að skiftingin var í save mode og þá var ónýtur loftflæðiskynjarinn í bilnum og hann er ónýtur nuna og gengur ílla hægagang þannig að ég tók hann úr sambandi svo að hann mundi ganga hægagang og ég gæti keyrt hann

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 15:21
by arni
sh4rk wrote:Sko er þetta ekki V8 vél í bilnum??? Því að ég lenti í því á bilnum minum að skiftingin var í save mode og þá var ónýtur loftflæðiskynjarinn í bilnum og hann er ónýtur nuna og gengur ílla hægagang þannig að ég tók hann úr sambandi svo að hann mundi ganga hægagang og ég gæti keyrt hann


nei þetta er 6cyl lína.
Ég þarf einmitt að láta skipta um þessa hosu. Mig vantar bara einhvern í það.
Hvað vilt þú taka fyrir þessa vinnu? :D

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 18:11
by ValliFudd
M54B30 í þessum myndi ég halda.. Magnaður mótor 8)

Mörg verðlaun fyrir engine of the year :)

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 18:13
by Saxi
sh4rk wrote:Sko er þetta ekki V8 vél í bilnum??? Því að ég lenti í því á bilnum minum að skiftingin var í save mode og þá var ónýtur loftflæðiskynjarinn í bilnum og hann er ónýtur nuna og gengur ílla hægagang þannig að ég tók hann úr sambandi svo að hann mundi ganga hægagang og ég gæti keyrt hann


Ég lenti í því á 3,0d að skítug loftsía (hefti loftflæði) kallaði fram þessa ,,Trans fails. program" meldingu (T.b sögðust hafa skipt um síuna en eitthvað hafði það misfarist tvisvar í röð :roll: )

Hvaða verkstæði sem er getur skipt um þessa hosu ef þú finnur ekki neinn hér.

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 19:06
by Lindemann
Image

Er þetta önnur hvort hosan á þessari mynd?

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 19:26
by slapi
Lindemann wrote:Image

Er þetta önnur hvort hosan á þessari mynd?

Það er númer 8 pottþétt ,rifna oft þar sem að öndunin kemur inn á stóru hosuna.

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 19:27
by Alpina
Eru menn alveg að missa sig í wannabe ?????

eiga X5 og tíma ekki að fara í umboðið ??

hvað næst :idea:

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 19:28
by maxel
"arni", þetta er virkilega auðvelt, svipaður erfiðleiki og að skipta um peru.

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 19:36
by Saxi
Alpina wrote:Eru menn alveg að missa sig í wannabe ?????

eiga X5 og tíma ekki að fara í umboðið ??

hvað næst :idea:


:shock:

Er X5 einhver heilög kýr? Þetta er ekki flóknasta aðgerðin :roll:

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 19:51
by Alpina
Saxi wrote:
Alpina wrote:Eru menn alveg að missa sig í wannabe ?????

eiga X5 og tíma ekki að fara í umboðið ??

hvað næst :idea:


:shock:

Er X5 einhver heilög kýr? Þetta er ekki flóknasta aðgerðin :roll:


Nei en ANSI líklegt að það þurfi að lesa af bílnum osfrv..

Og hvað er að því að láta þjónusta bílinn hjá umboði,, þarf hvort eð er að kaupa hosuna

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 20:10
by Saxi
Alpina wrote:
Saxi wrote:
Alpina wrote:Eru menn alveg að missa sig í wannabe ?????

eiga X5 og tíma ekki að fara í umboðið ??

hvað næst :idea:


:shock:

Er X5 einhver heilög kýr? Þetta er ekki flóknasta aðgerðin :roll:


Nei en ANSI líklegt að það þurfi að lesa af bílnum osfrv..

Og hvað er að því að láta þjónusta bílinn hjá umboði,, þarf hvort eð er að kaupa hosuna



arni wrote:Mig vantar bifvélavirkja/bmw kall til að laga bílinn minn sem fyrst!

Fór síðan með bílinn í B&L og það var lesin tölvan í honum. B&L sérfræðingurinn sagði að það væri gat á þessari lofthosu og ég þyrfti að skipta um hana. Ég keypti hana en er ekki búinn að geta skipt um hana.



8620055

PostPosted: Sun 21. Dec 2008 20:51
by Lindemann
ég get örugglega gert þetta annaðkvöld, tekur 5min eða eitthvað.

hringdu bara 865-9811 (Jakob)