Page 1 of 2

E46 320 að eyða 10 á langkeyrslu !

PostPosted: Sat 13. Dec 2008 21:25
by burri
E46 320D að eyða 10 á langkeyrslu ! hjá mér núna
hannh efurnú vanarlega verið í 6. getur veriðað kuldinn í dag sé að hafa svona svaka áhrif ? trúi því ekki

er eitthvað sem ykkur dettur í hug ? bíllin er annars að vinna alveg jafn vel ekkert vandamál þannig tók bara efir þessum tölum og brá.

PostPosted: Sat 13. Dec 2008 21:42
by KFC
Mér finnst þetta full mikið, er með E92 325I og hann er að eyða 8-9 á langkeyrslu. Myndi halda að þessi ætti að vera að eyða 6-7 á langkeyrslu.

PostPosted: Sun 14. Dec 2008 00:21
by thisman
Ertu viss um að þetta sé rétt reiknað út hjá þér? Er á 320D E46 og hann hefur aldrei farið í slíkar tölur í langkeyrslu, alveg sama hversu kalt hefur verið. Í langkeyrslu hef ég aldrei séð hann fara yfir 6 lítra á hundraðið þrátt fyrir frost, snjó og tilheyrandi.

PostPosted: Sun 14. Dec 2008 00:23
by thisman
En hvort ertu að taka þessar tölur úr aksturstölvunni eða útreiknað frá því hvað þú dældir á bílinn? Aksturstölvan hjá mér stemmir til að mynda ekki við rauneyðslu - tölvan sýnir reyndar minni eyðslu, en það sýnir allavega fram á að hún er ekki óskeikul.

PostPosted: Sun 14. Dec 2008 00:32
by Bandit79
Ég er á 2003 525D E39 SSK og hann er að ná 6,5-7L pr 100km miðað við langkeyrslu.

En talvan sýnir nánast alltaf 11.0-11,5 sem að stemmir kannski við Selfoss snattið en ég mældi langkeyrsluna við dælingu og kílómetra ekna.

Og þetta er sjálfskipt 1700kg flykki , og það eru endalaus hringtorg og hraðahindranir á Selfossi.

PostPosted: Sun 14. Dec 2008 07:35
by .
530D e60 var að eyða 6-7 hjá mér um hávetur á langkeyrslu

PostPosted: Sun 14. Dec 2008 12:25
by burri
ég er ekkert að mæla hann. ég man bara þegar ég notaði bílinn í sumar sýndi aksturstölvan í honum 6-7 ennúna í gær þá sýnir hún ekki undir 9 sama þo ég reseti hana .. þannig að það getur vel verið að tölvan sé að sýna bull.. en hún hefur ekki gert það hingað til . þaning að eitthvað hlýtur að vera bilað ..

PostPosted: Sun 14. Dec 2008 18:46
by Dóri-
Ég hafði það nú alltaf að vana að henda líter af sjálfskiptivökva á hráolíutankinn í annarri hverri áfyllingu til að halda spíssunum hreinum, hráolía getur kristallast í miklu frosti.

PostPosted: Mon 15. Dec 2008 01:56
by hjá
kaupið þið olíuna alltaf á sama stað?

sumar orku og shell stöðvarnar eru með lélega olíu alltaf. Hefur eitthvað að gera með tankbílana að gera, þeir eru notaðir fyrir skipaolíu eða eitthvað álíka. Minn e46 fer úr 5.2-5.6 í 6.0-6.5 og þeirri olíu. þetta er ég búinn að prufa af og til síðastliðna 40.000 km og alltaf í sömu rútínukeyrslu

PostPosted: Tue 16. Dec 2008 00:31
by bragi1
Verð einmitt var við að eyðslan hjá mér eykst í miklum kulda. En ekkert í líkingu við 10 lítra. Kíkir í 6.5L/100.

PostPosted: Tue 16. Dec 2008 11:48
by jonthor
Jú þetta er allt of mikil eyðsla, ætti ekki einu sinni að fara svona hátt í innanbæjarakstri.

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 02:06
by burri
mig er farið að gruna loftflæði skynjaran því han er farinnnað ganga verri hægagang en hann gerði

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 03:33
by Dóri-
burri wrote:mig er farið að gruna loftflæði skynjaran því han er farinnnað ganga verri hægagang en hann gerði


hægagangurinn getur verið furðulegur ef að það sé stífluð sían fyrir öndunina á vélinni!
þessi sía er staðsett undir hlífinni sem er yfir vélinni og ofaná ventlalokinu.
Bíllinn reykir stundum bláu ef að þetta sé orðið stíflað.

Svo væri ekkert vitlaust að rífa hosuna sem fer úr intercoolernum og inn á vélina og tékka á því hvort að það sé mikil drulla í EGR ventlinum.
þegar ég skoðaði þetta í mínum var bara 1cm gat, olíudrulla og sót fast.

Þegar ég fékk minn var loftsían alveg handónýt og eyðslan minnkaði rosalega við loftsíuskipti, bara muna eftir að snúa loftsíunni rétt, annars brotnar af loftsíunni og fer í túrbínuna á endanum.

Svo gæti líka verið að hvarfinn sé ónýtur.

Já og prófaðu spíssahreinsi.

PostPosted: Fri 19. Dec 2008 04:02
by Angelic0-
Já, ég hef tekið eftir mismunandi gæðum á olíunni...

530D var alltaf í þessu 4-4,5l/100 í langkeyrslunni á olíu sem að var keypt hjá N1..

Síðan var keypt olía á ÓB og mér fannst grúturinn brenna töluvert hraðar þar...

PostPosted: Sat 20. Dec 2008 16:59
by Mpower
Hvernig er það, er ekki öll hráolía úr sama farmi sem kemur til landsins? Og þar að auki frá Noregi? Finnst það undarlegt ef gæðin eru misjöfn.Það er sami aðili sem dreifir fyrir N1 olís shell orkuna ób og ego. En það er með þetta eins og annað, ef menn sannfæra sjálfa sig um eitthvað þá er erfitt að trúa öðru.