Page 1 of 1
Rúðupiss virkar ekki á e39

Posted:
Tue 09. Dec 2008 09:19
by grettir
Ég er í smá vandræðum með rúðupissið á 540 bílnum mínum, en það hætti allt í einu að virka fyrir nokkru og langaði að athuga hér hvort einhver þekkti vandamálið.
Litli kúturinn virkar (fyrir ljósin) en sá stærri er alveg dauður. Það kemur ekki einu sinn hljóð í mótorunum þegar ég reyni að sprauta.
Ég er búinn að fara yfir öll öryggi (í hanskahólfi og í skotti) en finn ekki annað en að það sé allt í góðu þar.
Kannast einhver við að þetta hætti svona skyndilega að virka? Eru einhver quick fix eða neyðist ég til að rífa þetta allt í spað?

Posted:
Tue 09. Dec 2008 09:21
by Einarsss
taka tengið úr sambandi og gá hvort þú fáir straum í það þegar einhver er inní bíl og notar rúðupissið ... ef það er straumur þá er dælan ónýt.

Posted:
Tue 09. Dec 2008 10:09
by grettir
einarsss wrote:taka tengið úr sambandi og gá hvort þú fáir straum í það þegar einhver er inní bíl og notar rúðupissið ... ef það er straumur þá er dælan ónýt.
Ég prófa það. Takk.
Ég var reyndar búinn að láta mér detta í hug að dælan væri ónýt, en svo sá ég að þær eru tvær þarna niðri. Önnur hefur kannski verið löngu ónýt og hin gefið sig nýlega eða hvað?

Posted:
Tue 09. Dec 2008 14:37
by DABBI SIG
Mjög líklega dælan að klikka, það er lítið mál að skipta þessu út. Alls ekkert dýrt heldur.

Posted:
Tue 09. Dec 2008 14:53
by Tommi Camaro
DABBI SIG wrote:Mjög líklega dælan að klikka, það er lítið mál að skipta þessu út. Alls ekkert dýrt heldur.
nú er það.
síðast þegar ég vissi þá er dælan bakvið innrabrettið h-megin og þarf að kippa því út til að redda þessu

Posted:
Tue 09. Dec 2008 17:52
by grettir
Tommi Camaro wrote:DABBI SIG wrote:Mjög líklega dælan að klikka, það er lítið mál að skipta þessu út. Alls ekkert dýrt heldur.
nú er það.
síðast þegar ég vissi þá er dælan bakvið innrabrettið h-megin og þarf að kippa því út til að redda þessu
Búinn að prófa að rífa það frá. Þegar maður fattar hvernig þessi ansk.. festingar virka, þá var það frekar lítið mál
