bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Ummál dekkja
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33550
Page 1 of 2

Author:  Bjarki [ Sun 07. Dec 2008 15:14 ]
Post subject:  Ummál dekkja

Er með 2 dekk á felgu 215/55R16
og svo 2 dekk, sömu stærðar, ekki á felgu.

Þegar ég stilli þeim upp þá er rosalegur munur á hæðinni.
Maður hefur heyrt að það geti verið nokkur munur á dekkjum í sömu stærð á milli framleiðenda.
Ég er að velta því fyrir mér hvort að þetta verði eðlilegt þegar dekkin verða komin á felguna og loft í þeim.

Þetta er undir iX bíl, þess vegna er ég að hugsa um þetta. Ef stærðin er ekki sú sama þá kemur eitthvað mjög vont hljóð.
Veit samt ekki hvort þessi litli munur hafi eitthvað að segja.

Hvað segja menn um þessar getgátur?

Author:  Tommi Camaro [ Sun 07. Dec 2008 15:33 ]
Post subject: 

efast um að það hafi eitthvað að segja .
þú ert senilega ekki með læstan millikassa í bílnum eða beintengdan

Author:  saemi [ Sun 07. Dec 2008 15:35 ]
Post subject: 

Ég vil meina að þessi munur verði miklu minni þegar dekkið er komið á felgu...

Author:  Alpina [ Sun 07. Dec 2008 17:37 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Ég vil meina að þessi munur verði miklu minni þegar dekkið er komið á felgu...

Sammála

Author:  Angelic0- [ Mon 08. Dec 2008 00:05 ]
Post subject: 

Millikassinn er með viscos einsog afturdrifið í iX....

thus ætti ekki að vera neitt stórt vandamál þó að bíllinn sé á misstórum...

en minnir að millikassinn hjá Hannesi hafi orðið FUBAR útaf því að hann tók kambinn úr framdrifinu....

en mis-stór dekk ættu ekki að slátra þessu á 0-1...

Author:  Bjarki [ Mon 08. Dec 2008 01:18 ]
Post subject: 

Það sprakk hjá mér í sumar og ég setti að aftan 195/65R15 og var með að framan 215/55R16 og það komu bara vond hljóð úr millikassanum.
Þess vegna er ég að vandræðast með þetta.
En ég held að maður verði bara að láta reyna á þetta, sumardekkin eru ekki að gera sig núna :roll:

Author:  karlbark [ Tue 09. Dec 2008 03:06 ]
Post subject: 

Hmmm, menn virðast mikið vera að draga úr því að þetta sé eitthvað mál.
Þannig að ég ætla að aðeins að koma með það sem ég hef heyrt um þetta...

-Hef svo sem enga reynslu af fjórhjóla-BMW, en ég man að þegar ég bjó í Svíaríki fyrir nokkrum árum, þá voru Volvo Cross Country mikið að bila út af þessu. Fólk var beðið um að passa ummál dekkja *mjög* vel
-jafnvel þótt að þau væru af sömu stærð. (Þ.e. dekk slitna jú mismikið að framan og aftan).

Auðvitað voru þessir bílar líka með viskósakúplingu og það allt saman, en þetta er bara alls ekki jafn lítið mál og menn vilja meina hér.
(Og by the way þá er fjórhjóladrif ekki sterkasta hlið BMW, þannig að ég myndi passa þetta vel)!

Author:  Angelic0- [ Tue 09. Dec 2008 03:09 ]
Post subject: 

karlbark wrote:

Ég verð nú bara eiginlega að skipa þér að opna nærbuxnaskúffuna þína og byrja að japla....

Því að eftir því ég best veit er X-Drive að slá í gegn :!:

En none-the-less þá er aldrei hollt fyrir 4x4/4WD/AWD að vera á misstórum dekkjum, þó að ekki sé nema eitt dekk í rangri stærð..

Öll drif fara illa þegar að það er misræmi í stærðum...

Author:  saemi [ Tue 09. Dec 2008 18:29 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Ég verð nú bara eiginlega að skipa þér að opna nærbuxnaskúffuna þína og byrja að japla....

Öll drif fara illa þegar að það er misræmi í stærðum...

Er ekki bara hægt að hafa aðra skoðun á hlutunum án þess að nokkur þurfi að japla á nærbuxum.

En ég er aftur á móti ekki á því að fjórhjóladrif BMW séu neitt annað en góð hönnun.

Ég hef ekki heyrt og reynt annað en fyrstu fjórhjóladrifsbílarnir, 325 og 525ix standi sig mjög vel enn þann dag í dag.

Nýrri bílarnir hafa heldur ekki verið að fá slæma dóma mér að vitandi og ekki get ég sagt neitt slæmt um X5 sem ég hef átt í að verða ár.

Þannig að það væri fróðlegt að vita hvaðan það kemur að 4x4 sé ekki sterkasta hlið BMW. Ég skil það ef það er verið að vísa til þess að BMW séu ennþá betri í öðrum hlutum en samt mjög góðir í því :D En ef átt er við að BMW séu að gera slæma hluti með 4x4 væri gaman að fá að heyra meira af hverju.

Author:  Angelic0- [ Tue 09. Dec 2008 21:02 ]
Post subject: 

saemi wrote:
Angelic0- wrote:
Ég verð nú bara eiginlega að skipa þér að opna nærbuxnaskúffuna þína og byrja að japla....

Öll drif fara illa þegar að það er misræmi í stærðum...

Er ekki bara hægt að hafa aðra skoðun á hlutunum án þess að nokkur þurfi að japla á nærbuxum.

Fyrirgefðu það elsku Sæmi minn ef að ég fór fyrir hjartað í þér...

Þetta var bara fólskuleg tilraun mín til þess að vera fyndinn, ekkert illa meint í þessu innleggi... þó að hvassyrt sé...

Author:  gstuning [ Tue 09. Dec 2008 21:04 ]
Post subject: 

Að vera með mismunandi stærð að aftann t,d á bmw, þá sér drifið eins og bílinn sé alltaf að beygja bara.

Efast að það sé vandamál nema við séum að tala um þokkalegar stærðir.

Author:  saemi [ Tue 09. Dec 2008 22:04 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Fyrirgefðu það elsku Sæmi minn ef að ég fór fyrir hjartað í þér...

Þetta var bara fólskuleg tilraun mín til þess að vera fyndinn, ekkert illa meint í þessu innleggi... þó að hvassyrt sé...

Ég veit það alveg :lol:

Vantaði bara broskallinn hjá þér, þetta er internetið :D

Author:  Lindemann [ Tue 09. Dec 2008 23:23 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Að vera með mismunandi stærð að aftann t,d á bmw, þá sér drifið eins og bílinn sé alltaf að beygja bara.

Efast að það sé vandamál nema við séum að tala um þokkalegar stærðir.

það hefur engin áhrif í stuttan tíma, en til lengri tíma skapar það óþarfa hita í drifin og slit á mismunadrifi..........það er auðvitað verra á læstum drifum.

Author:  gstuning [ Tue 09. Dec 2008 23:25 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
gstuning wrote:
Að vera með mismunandi stærð að aftann t,d á bmw, þá sér drifið eins og bílinn sé alltaf að beygja bara.

Efast að það sé vandamál nema við séum að tala um þokkalegar stærðir.

það hefur engin áhrif í stuttan tíma, en til lengri tíma skapar það óþarfa hita í drifin og slit á mismunadrifi..........það er auðvitað verra á læstum drifum.

klárlega bara til að redda sér , engin eurotrips :)

Author:  karlbark [ Wed 10. Dec 2008 03:42 ]
Post subject: 

Hehe, ég átti nú fyllilega von á því að fá einhver viðbrögð við þessu lokacommenti hjá mér
En ég var nú reyndar að meina þetta eins og Sæmi var að tala um, þ.e. að þeir væru betri í ýmsu öðru.
Svo var ég nú reyndar með hugann við fjórhjóladrifs-fólksbílana þeirra. Ég var einhvern veginn ekkert að spá í X3 & X5.

En einhvern veginn þá kom þetta nú aðallega til út af því að ég fann einhvern veginn myndast horn á höfðinu og mér bara tókst ekki að sleppa þessu ;-D

-K

Já.....og varðandi nærbuxurnar:
*krjamms* *krjamms* *krjamms* :lol:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/