bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Olíuskipti
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33520
Page 1 of 2

Author:  xripton [ Fri 05. Dec 2008 22:07 ]
Post subject:  Olíuskipti

Hvað er það sem ég þarf að hafa í huga þegar ég skipti um olíu á sjálfskiptum bíl?

þetta er 325i e46

allavegna býst við svari.

Author:  Alpina [ Fri 05. Dec 2008 22:16 ]
Post subject:  Re: Olíuskipti

xripton wrote:
Hvað er það sem ég þarf að hafa í huga þegar ég skipti um olíu á sjálfskiptum bíl?

þetta er 325i e46

allavegna býst við svari.

Það er eflaust LIFETIME olia á skiptingunni,, er ekki viss

en ATH ........... BMW gekk þannig frá því að spes verkfæri þarf osfrv

Author:  xripton [ Fri 05. Dec 2008 22:31 ]
Post subject: 

spes verkfæri hvernig?

Author:  Alpina [ Fri 05. Dec 2008 22:36 ]
Post subject: 

xripton wrote:
spes verkfæri hvernig?

Kann ekki nógu góð skil á því ,, en þetta er ekki gert DIY

Author:  ss [ Fri 05. Dec 2008 22:38 ]
Post subject: 

td í sumum skiptingum hjá benz þarf að hella olíunni á í gegnum tappann á pönnunni, ekki sérlega skemmtilegt það :wink:

Author:  DABBI SIG [ Sat 06. Dec 2008 02:13 ]
Post subject: 

Það er lifetime olía á skiptingunni, þetta er slatta process að skipta um olíuna, þarf að hita hana uppí eitthvað ákveðið heyrði ég einhversstaðar, það þarf að skipta um pakkninguna og það þarf að vera perfect gert. Þannig mæli ekki með að gera þetta bara í bílskúrnum.

T.B. eru hinsvegar að bjóða uppá þetta þannig ég mæli með að fara og láta þá gera þetta.
Og það er allsekkert vitlaust held ég að skipta um þessa olíu þó að þetta heiti lifetime olía...

Author:  xripton [ Sat 06. Dec 2008 03:29 ]
Post subject: 

alright takk fyrir

Author:  Zatz [ Sat 06. Dec 2008 21:24 ]
Post subject:  TTT

er smá... smá fullur en ég held að það sé 750000 kílómetra fresti sem það ert skitpt um i sjálfskitum . það er massa eftitt jób að gera þetta sjálfur og svo er líka DIY á mörgum förum og bara segjir þér hvað þú gerir og hvað þú þarft í það . :roll:

Author:  Angelic0- [ Sun 07. Dec 2008 07:21 ]
Post subject: 

4hp22 og 4hp24 voru að fara í steik í gríð og erg afþví að menn héldu að það væri bara hægt að tríta þetta einsog einhverjar corollu skiptingar...

Þetta eru svona tvöfalt flóknari skiptingar og þurfa oftar smur t.d.

Það er ekkert til sem að heitir life-time...

Snerpan í bílnum hjá Hannesi t.d. jókst til muna þegar að skipt var um olíuna á 540 hjá honum, og ég held að það hafi verið sama batterí-ið hjá Danna ;)

Author:  Hlynur___ [ Sun 07. Dec 2008 07:34 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
4hp22 og 4hp24 voru að fara í steik í gríð og erg afþví að menn héldu að það væri bara hægt að tríta þetta einsog einhverjar corollu skiptingar...

Þetta eru svona tvöfalt flóknari skiptingar og þurfa oftar smur t.d.

Það er ekkert til sem að heitir life-time...

Snerpan í bílnum hjá Hannesi t.d. jókst til muna þegar að skipt var um olíuna á 540 hjá honum, og ég held að það hafi verið sama batterí-ið hjá Danna ;)

það verður gaman að prufa það,

hvað er maður að keyra langt á sömu olíuni?

Author:  Bjarki [ Sun 07. Dec 2008 16:16 ]
Post subject: 

Held að lifetime sé á undanhaldi, MB eru hættir með þetta.

Held að þetta sé ekki jafn flókið aðgerð og menn lýsa hér að ofan.

Ef þetta er eins og í m50 og m60 skiptingum þá er það ekkert rosalegt. Bara tekur smá hring og lætur þetta hitna aðeins, minnir að það eigi að vera um 80gráður en +/- eitthvað er enginn dauði.
Svo bara pumpar maður inná skiptinguna, ég nota bara venjulega dælu eins og er notuð til að fylla á drif og gírkassa.
Þetta er dirty job en ekkert hættulegt.
Verkstæði setja bílana í gang og hafa þá tengda við tester og fylgjast með hitanum á skiptingunni í gegnum hann.
Svo er pannan alltaf tekið undan skiptingunni við svona aðgerðir, hreinsuð og skipt um pakkninguna. Stundum er segulstál sem þarf að hreinsa.

Ef það þarf eitthvað special þá er örugglega hægt að búa til eitthvað sniðugt.
Núna er kreppa og DIY gaurar verða að finna lausnir á öllu 8)

Author:  DABBI SIG [ Sun 07. Dec 2008 22:01 ]
Post subject: 

Mig minnir meira að segja að ég hafi séð einmitt DIY fyrir að skipta um olíu á svona skiptingu sbr. fyrir E46 og það var ekkert gífurlegt mál fyrir menn sem hafa annað en 5 pumalputta.

En þetta kostar að sjálfsögðu aðstöðu og vönduð vinnubrögð og sömuleiðis að EF eitthvað fer í fokk að þekkja þá til hjá fagmanni og geta ráðfært sig.

Ég er alveg til í að borga nokkra þúsara til að láta gera þetta almennilega heldur en að sitja uppi með eitthvað skemmda/bilaða skiptingu eftir að hafa ekki kunnað að mixa pakkninguna eða annað almennilega aftur á!

Annars er bara cool ef menn treysta sér í þetta!

Author:  Einsii [ Sun 07. Dec 2008 22:15 ]
Post subject: 

Hvernig stendur á því að ég hef beðið verkstæði um að gera þetta við allavega þrjá bíla sem ég hef átt, og þeir hafa alltaf talað um hvað það þurfi ekki.
Svo núna síðast bað ég þá að gera þetta bara því ég vildi það en þeir eigilega töluðu mig ofanafþví.
Ég sagði þeim samt að skoða hana og frekar skipta heldur en sleppa því, því ég hefði heyrt menn tala um að það væri fínt að gera þetta í kringum 100þúsund km.
þeir seigja já, en svo skipta þeir ekki um hana seigja skiptinguna og olíuna mjög fína og vildu þessvegna ekki gera það.

Hvernig meta verkstæðis menn svona. Ég bara trúi því varla að það sé alger óþarfi að skipta um olíu á skiptingu á bíl sem er ekinn 115.000km...

Author:  jon mar [ Sun 07. Dec 2008 22:34 ]
Post subject: 

Einsii wrote:

Ætli að svarið sé ekki þannig að þeir einfaldlega "nenna því ekki" og hafa næg önnur verkefni sem þeim finnst merkilegri.

Ég myndi frekar skipta við þá sem eru tilbúnir að fara að þínum óskum þegar þú vilt vera fyrirhyggjusamur.

Author:  Einsii [ Sun 07. Dec 2008 23:07 ]
Post subject: 

jon mar wrote:

Mér þykir það ólíklegt því þeir vita að ég er borgunarmaður fyrir öllu sem þeir hafa gert og munu gera fyrir mig, annað en margir sem þeir hafa sagt mér frá :)
Svo líka það að þegar ég hringdi til að tékka á tíma þá var það lítið að gera að þeim hálfpartinn lá á að fá bílinn og buðust til að skutla mér aftur í vinnuna.. allt svona bara til að fá eitthvað að gera.
Svo hafa þeir líka séð um nánast alla mína bíla og hafa reynst mér vel.
Grunar að þeir hafi ekki gert þetta því þeir vildu spara mér kostnaðinn við eitthvað sem sjálfsagt hefur ekki þurft að gera.
Ég er bara að spá í hvernig þeir sjá hvort svona lagað þurfi að gera eða ekki.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/