bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

M30B35
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33507
Page 1 of 3

Author:  hjaltib [ Fri 05. Dec 2008 13:25 ]
Post subject:  M30B35

Ætla að koma með eins spurningu hérna þar sem ég er farinn að verða uppiskropa af hugmyndum.

En ég er með M30B35 vél 84' úr e23 sem fer ekki í gang og startið lýsir sér þannig að þegar ég starta heyrir maður að hún sé að þjappa og er eins og hún sé alveg að fara í gang en þá allt í einu er eins og hún hættir að þjappa eins og cutað sé á bensín eða neista, svo ef maður heldur áfram startinu byrjar hún allt í einu aftur að þjappa og endurtekur sig svona en fer aldrei í gang.

Einhver lent í þessu ég er búinn að prufa margt ætla nú ekki að telja það upp hér, en vill endilega fá svör frá ykkur sem hafa verið að skipta þessum vélum úr og í bíla.

Kveðja Hjalti

Author:  gstuning [ Fri 05. Dec 2008 14:51 ]
Post subject: 

Byrjar alltaf á sama stað.

Neisti?
Bensín?
Full hlaðinn rafgeymir?


Get ekki sagt það nógu oft, menn verða bara að athuga þessa hluti áður enn þeir koma á spjallið að spyrja um bilanagreiningar.

Ef það er neisti.

Þá þýðir það að eftifarandi er allaveganna í lagi.
Tölvan.,
Kveikjuskynjari
Main relay
12v að háspennukefli
Ground á vélinni er mjög líklega alveg í lagi.

Þetta útilokar t,d alveg ótrúlega mikið af bilanaleit eða gisk.

Ef það er bensín að koma frá railinu úr þrýstijafnaranum.
Þá þýðir það að
bensíndælu relay fer í gang, sem þýðir að tölvan fær rafmagn, sem þýðir að main relay og bensín dælu relay virka.

Athuga svo 12v yfir spíssanna

Athugaðu þetta, sem mun líklega gera þér kleyft að laga hlutinn án frekarri spurninga , ef þú getur það ekki
report back.

Author:  srr [ Fri 05. Dec 2008 14:54 ]
Post subject: 

Gunni....en þegar m30b35 tölvan mín var biluð, kom samt ekki neisti?

Spurning að opna ECU og leita eftir skemmdum, rakaskemmdum etc.. ?

Author:  gstuning [ Fri 05. Dec 2008 15:01 ]
Post subject: 

srr wrote:
Gunni....en þegar m30b35 tölvan mín var biluð, kom samt ekki neisti?

Spurning að opna ECU og leita eftir skemmdum, rakaskemmdum etc.. ?


hún getur hafa verið biluð á annan hátt(spíssa stýringin t,d, innlestur frá loftflæðimæli og alskyns)
ég myndi gera allt annað áður enn ég dæmi tölvuna dauða.

sérstaklega testa eftir bensíni og neista

Author:  srr [ Fri 05. Dec 2008 15:02 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
srr wrote:
Gunni....en þegar m30b35 tölvan mín var biluð, kom samt ekki neisti?

Spurning að opna ECU og leita eftir skemmdum, rakaskemmdum etc.. ?


hún getur hafa verið biluð á annan hátt(spíssa stýringin t,d, innlestur frá loftflæðimæli og alskyns)
ég myndi gera allt annað áður enn ég dæmi tölvuna dauða.

sérstaklega testa eftir bensíni og neista

Já, satt...

En er þetta ekki líka M30B34, ekki B35?

Author:  saemi [ Fri 05. Dec 2008 15:11 ]
Post subject:  Re: M30B35

hjaltib wrote:
Ætla að koma með eins spurningu hérna þar sem ég er farinn að verða uppiskropa af hugmyndum.

En ég er með M30B35 vél 84' úr e23 sem fer ekki í gang og startið lýsir sér þannig að þegar ég starta heyrir maður að hún sé að þjappa og er eins og hún sé alveg að fara í gang en þá allt í einu er eins og hún hættir að þjappa eins og cutað sé á bensín eða neista, svo ef maður heldur áfram startinu byrjar hún allt í einu aftur að þjappa og endurtekur sig svona en fer aldrei í gang.

Einhver lent í þessu ég er búinn að prufa margt ætla nú ekki að telja það upp hér, en vill endilega fá svör frá ykkur sem hafa verið að skipta þessum vélum úr og í bíla.

Kveðja Hjalti


Ég er ekki að skilja þig alveg hér. Þú segir að vélin hætti að þjappa!

Það er eitthvað vitlaust við þetta hjá þér því ef vélin er að þjappa og hættir að þjappa allt í einu... þá er eitthvað mikið skrýtið. Það gæti bara mögulega skýrst af því að bensín skolar olíufilmu af strokksveggjunum. En það gerist ekki allt í einu, heldur hægt og hægt. Það heyrist heldur ekki heldur er bara hægt að mæla. Það gerist ekki við það að lokað sé fyrir bensín eða neista.

Ertu ekki að tala um að vélin starti og starti, eins og hún sé alveg að fara í gang, en svo ????? eitthvað annað sem vantar betri útskýringu á.

Endilega komdu með betri útskýringu á þessu svo hægt sé að finna út úr þessu. Þetta er eitthvað sem er ekki stórt vandamál vil ég meina.

Author:  Stebbtronic [ Fri 05. Dec 2008 15:31 ]
Post subject: 

Gæti verið eitthvað varðandi að gamla M30b28 vélin sem hann tók úr var L-jet en nýja m30b34 er motronic...
en ef hann fær neista og bensín þá er eitthvað mikið meira spooky í gangi

Author:  srr [ Fri 05. Dec 2008 15:34 ]
Post subject: 

Stebbtronic wrote:
Gæti verið eitthvað varðandi að gamla M30b28 vélin sem hann tók úr var L-jet en nýja m30b34 er motronic...
en ef hann fær neista og bensín þá er eitthvað mikið meira spooky í gangi

Það conversion virkaði hjá mér...
520i M20B20 L-jetronic ->>> 535i M30B35 motronic
Ég notaði E32 730i bsk loom og sníðaði það inn í E28 kerfið með sínu æðislega keramik öryggjaboxi....
Var ekkert mál hvað það varðaði.

Ég fann listann sem ég notaðist við til að tengja E32 loomið inn í E28 kerfið...
Hérna er hann í heild sinni:

http://www.simnet.is/srr/bmw/m30b35.txt

Kannski að hann gagnist þér eitthvað.

Author:  hjaltib [ Fri 05. Dec 2008 15:55 ]
Post subject: 

jæja jæja sko okey kannski hættir hún ekki að þjappa en það er eins og hún hætti að gefa neista eða bensín samt gerir hún það ekki er búinn að prufa að mæla allt, háspennukeflið fær 12v og neistinn er alltaf í startinnu búinn að athuga það
eins með spíssanna þeir eru alltaf með 12 v spennu í startinu

En ef ég kem með betri lýsingu eða reyni, þá eins og þetta er núna þá eru bara pústgreinarnnar á og heyrir maður þá vel þegar hann er að sprengja/þjappa en svo allt í einu eftir svona nokkra sec start er eins og hann hættir að sprengja eins og það hafi verið cutað fyrir neista eða bensín í 4 sec (samt mældi ég spíssanna og keflið þegar þetta gerist og þeir sýna 12v allann tímann) og svo byrjar hún aftur að sprengja og þetta endurtekur sig svo aftur og aftur.

Author:  gstuning [ Fri 05. Dec 2008 16:00 ]
Post subject: 

Farðu yfir listann sem ég henti inn,
þarft að sjá bensín dælast úr railinu til að vera viss um að það sé í lagi

Author:  Bui [ Fri 05. Dec 2008 17:09 ]
Post subject: 

prufaðu að beintengja dæluna og startahonum ef það virkar þá er þetta svipað og hjá mér dælan einhvað leiðinleg :lol: vona að þetta komi að einhverju gagni

Author:  saemi [ Fri 05. Dec 2008 17:37 ]
Post subject: 

hjaltib wrote:
jæja jæja sko okey kannski hættir hún ekki að þjappa en það er eins og hún hætti að gefa neista eða bensín samt gerir hún það ekki er búinn að prufa að mæla allt, háspennukeflið fær 12v og neistinn er alltaf í startinnu búinn að athuga það
eins með spíssanna þeir eru alltaf með 12 v spennu í startinu

En ef ég kem með betri lýsingu eða reyni, þá eins og þetta er núna þá eru bara pústgreinarnnar á og heyrir maður þá vel þegar hann er að sprengja/þjappa en svo allt í einu eftir svona nokkra sec start er eins og hann hættir að sprengja eins og það hafi verið cutað fyrir neista eða bensín í 4 sec (samt mældi ég spíssanna og keflið þegar þetta gerist og þeir sýna 12v allann tímann) og svo byrjar hún aftur að sprengja og þetta endurtekur sig svo aftur og aftur.


Það er svo stór munur á því sem þú segir sem sama hlutinn. sprengja/þjappa. Þetta er tvennt ólíkt. Þjappa er gerist alltaf þegar mótornum er snúið (ef mótorinn er í lagi og það er í þjöppuslagi) en hann sprengir einungis ef neisti loft og bensín er til staðar á réttum stað á réttum tíma.

Startar bíllinn eðlilega?

Sprengir hann reglulega eða óreglulega.

Sprengir hann eðlilega eða sprengir hann þannig að hann skjóti á móti (startarinn koðnar niður og vélin hættir að snúast, allavega hægist verulega á snúningi hennar).

Þegar þú segir að hann hætti að sprengja, hættir þá mótorinn að snúast eða heldur hann áfram eðlilegum snúning (miðað við að það sé verið að snúa honum).

Author:  hjaltib [ Fri 05. Dec 2008 18:52 ]
Post subject: 

sæmi ef þú ert að tala um að hann sé vitlaus á kveikju þá er það ekki það hann startar bara og startar alltaf eðlilega nema auðvitað þegar það er eins og hann sé alveg að fara í gang, búinn að prufa að beintengja dæluna og það er alltaf nóg flæði á bensíninu.

Author:  Lindemann [ Fri 05. Dec 2008 19:17 ]
Post subject: 

varstu ekki búinn að koma honum í gang um daginn??

Author:  sh4rk [ Fri 05. Dec 2008 19:19 ]
Post subject: 

Hjalti ertu kominn með réttar teikningar fyrir vélina??? Það þýðir ekki að vera að notast við teikningar að rafkerfi fyrir E32 735i

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/