bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Samlæsingavesen í E36.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33492
Page 1 of 1

Author:  lacoste [ Thu 04. Dec 2008 22:21 ]
Post subject:  Samlæsingavesen í E36.

Sælir,

Ég er með E36 coupe, 92 árgerð. Og það er eitthvað samlæsingavesen á honum. Þetta lýsir sér svona

- Samlæsingarnar virka ekki neinstaðar.
- Ljósin sem eiga að kviknast á þegar hurð er opnuð, virka ekki. Nema ég kveiki náttúrulega manually á þeim.
- Það eru btw ekki fjarstýrðar samlæsingar á honum.
- Það er þjófarvarnarkerfi i honum, en ég veit ekki hvort það er OEM. Það er svona rautt LED ljós aftanvið gírstöngina, a milli sætishitatakkanna. Og til að taka þjófarvörnina af setur maður svona lítinn og langan kubb ofaná þetta LED ljós, þá er hægt að kveikja á bílnum. Voðalega old school og töff :D

En já, vandamálið er eins og ég segi að það virkar bara ekkert tengt þessum samlæsingum. Og er þá ekki líklegast að kerfið í heild sinni sé ekki að fá rafmagn? Eða tölvuheilinn sem stjórnar þessu eitthvað vangefinn? Þetta getur varla verið eitthvað sambandsleysi í einstökum skynjurum, þar sem að allt kerfið er lamað.

Any ideas ? :roll:

Author:  E55FFFan [ Thu 04. Dec 2008 22:31 ]
Post subject:  Re: Samlæsingavesen í E36.

ég held að það se heili í öðrum hvorum hurðunum sem stýrir samlæsingunum, það var allavega í mínum sem er reyndar E34, sami skíturinn?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/