bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Á BMW að rása á 17 low profile
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=33230
Page 1 of 1

Author:  ice4x4 [ Sun 23. Nov 2008 21:21 ]
Post subject:  Á BMW að rása á 17 low profile

Sælir

Þar sem ég hef séð að hérna eru miklir viskubrunnar í BMW fræðum þá velti ég fram spruningu sem ykkur kann að þykja hálf vitlaus.....

Ég var að kaupa Bmw E36 328i

Bílinn er með lækunnargormum og á 17" felgum og á dekkjum 225/45 r17.

Ég er búin að eiga allskonar bílar á allt að 20" felgum og ég var ekki var við neitt rás í þeim en það voru vissulega þyngri bílar.

Þar sem E36 er nú frekar léttur bíll þá gæti þetta bara verið okkur frábæra vegakerfi að kenna.

Þar sem þetta verður daily driver konunnar þá verða svona hlutir að vera í lagi annars biður hún um Yaris eða eitthverja smátík næst......

Með von um einhver góð svör..

Kv Gísli :)

Author:  IceDev [ Sun 23. Nov 2008 21:50 ]
Post subject: 

Ég hef átt 2 bíla með þessari stærð af dekkjum, Z4 og 318 E36 með stífari fjöðrun

Báðir rásuðu eins og mófó, frekar leiðinlegt vandamál

Author:  Tommi Camaro [ Sun 23. Nov 2008 21:51 ]
Post subject:  Re: Á BMW að rása á 17 low profile

ice4x4 wrote:
Sælir

Þar sem ég hef séð að hérna eru miklir viskubrunnar í BMW fræðum þá velti ég fram spruningu sem ykkur kann að þykja hálf vitlaus.....

Ég var að kaupa Bmw E36 328i

Bílinn er með lækunnargormum og á 17" felgum og á dekkjum 225/45 r17.

Ég er búin að eiga allskonar bílar á allt að 20" felgum og ég var ekki var við neitt rás í þeim en það voru vissulega þyngri bílar.

Þar sem E36 er nú frekar léttur bíll þá gæti þetta bara verið okkur frábæra vegakerfi að kenna.

Þar sem þetta verður daily driver konunnar þá verða svona hlutir að vera í lagi annars biður hún um Yaris eða eitthverja smátík næst......

Með von um einhver góð svör..

Kv Gísli :)

hjólastilling
mig grunar að þú sért með bíllinn sem lent í tjoni um daginn og var boðinn upp í vís

Author:  bragi1 [ Sun 23. Nov 2008 22:00 ]
Post subject: 

Átti E36 á 17". Ókeyrandi ef vegurinn var eitthvað annað en silky smooth.

Author:  IceDev [ Sun 23. Nov 2008 22:01 ]
Post subject: 

Ahh, ég man núna að 318 lagaðist eftir hjólastillinguna

Author:  elli [ Sun 23. Nov 2008 22:06 ]
Post subject: 

Var með E36 sem rásaði rosalega að aftan allt þangað til ég skipti um spyrnufóðringarnar (boddy púðar).
Þá var hann bara flottur.

Author:  ice4x4 [ Sun 23. Nov 2008 23:18 ]
Post subject:  Rás

Þetta er bílinn sem var á Vís um daginn...

Ég ætla að prófa að fara með hann í hjólastillingu og sjá hvað setur .....

Vona að þetta lagist eitthvað við það.

Kv Gísli

Author:  thisman [ Mon 24. Nov 2008 09:34 ]
Post subject: 

Ég er á E46 sem var gjörsamlega að gera mig vitlausan í sumar og hann er ekki nema á 225/50 R16!

Hann var semsagt alveg dúndurfínn þegar ég keypti hann fyrir rúmu ári og síðan alveg snilld síðasta vetur. Síðan keypti ég ný dekk undir framendann á honum (Marshall aka Kumho) síðasta vor og hann fór að rása alveg eins og vitleysingur. Ég ætlaði hreinlega ekki að kaupa að dekkin væru málið og sannfærði sjálfan mig að það hlyti að vera tilviljun eða það hlyti þá allavega að skána við einhverja notkun á dekkjunum.

Það gerði það bara alls ekki ég fór meðal annars með hann í hjólastillingu til að athuga hvort það gæti verið eitthvað slíkt - hafði heyrt af bílum þar sem það hafði bara verið málið. Þeir leiðréttu einhverja smávegis skekkju en það skipti akkurat engu máli og hann hélt áfram að rása. Fiktaði mig einnig áfram með loftþrýstinginn en allt kom fyrir ekki.

Ég var síðan farinn að venjast þessu þegar leið á sumarið og passaði mig bara á öllum hjólförum og slíku því þar lét hann bara eins og vitleysingur (kræst, verð bara pirraður af tilhugsuninni svona eftir á! :evil:). Fór síðan aftur á vetrardekkin núna um daginn (sem eru btw nákvæmlega sama stærð) og bíllinn er aftur eins og draumur þannig að þessi #$"%"#%#% Marshall dekk munu ALDREI rata aftur undir framendann á bílnum!

Semsagt - ef hjólastillingin nægir ekki og ef hann rásar jafnt til beggja hliða þá gæti lausnin legið í dekkjunum. Það er ekkert eðlilegt að þýskur fákur haldist ekki þokkalega á veginum þó hann sé á 17".

Author:  grettir [ Mon 24. Nov 2008 09:37 ]
Post subject: 

Sammála thisman. Það var búið að telja mér í trú um að þetta væri einfaldlega hluti af því að vera á 17 tommu, en vandamálið hvarf þegar ég setti almennileg dekk undir.

Author:  Einarsss [ Mon 24. Nov 2008 09:43 ]
Post subject: 

sama á E46 sem ég átti ... önnur tegund á vetrar og sumardekkjum og reyndar munur líka breidd og prófíl

Sumardekkin 225/50/16 michelin = rásar í hjólförum
Vetrardekk 215/55/16 - good year = draumur

Author:  Berteh [ Mon 24. Nov 2008 10:04 ]
Post subject: 

ég var á e46 á 225/45R17 sumar og vetrar og fann bara lítið sem ekkert fyrir þessu :D

Author:  JOGA [ Mon 24. Nov 2008 10:08 ]
Post subject: 

Það er orginal Continental 225/45/17 undir mínum og orginal M fjöðrun.
Hann rásar ekkert og er fáránlega stabíll og skemmtilegur.

Þannig að það þarf ekki að sætta sig við svona. Eitthvað sem er ekki að virka sem skyldi.

Author:  BMWRLZ [ Mon 24. Nov 2008 12:22 ]
Post subject: 

thisman wrote:
Ég er á E46 sem var gjörsamlega að gera mig vitlausan í sumar og hann er ekki nema á 225/50 R16!

Hann var semsagt alveg dúndurfínn þegar ég keypti hann fyrir rúmu ári og síðan alveg snilld síðasta vetur. Síðan keypti ég ný dekk undir framendann á honum (Marshall aka Kumho) síðasta vor og hann fór að rása alveg eins og vitleysingur. Ég ætlaði hreinlega ekki að kaupa að dekkin væru málið og sannfærði sjálfan mig að það hlyti að vera tilviljun eða það hlyti þá allavega að skána við einhverja notkun á dekkjunum.

Það gerði það bara alls ekki ég fór meðal annars með hann í hjólastillingu til að athuga hvort það gæti verið eitthvað slíkt - hafði heyrt af bílum þar sem það hafði bara verið málið. Þeir leiðréttu einhverja smávegis skekkju en það skipti akkurat engu máli og hann hélt áfram að rása. Fiktaði mig einnig áfram með loftþrýstinginn en allt kom fyrir ekki.

Ég var síðan farinn að venjast þessu þegar leið á sumarið og passaði mig bara á öllum hjólförum og slíku því þar lét hann bara eins og vitleysingur (kræst, verð bara pirraður af tilhugsuninni svona eftir á! :evil:). Fór síðan aftur á vetrardekkin núna um daginn (sem eru btw nákvæmlega sama stærð) og bíllinn er aftur eins og draumur þannig að þessi #$"%"#%#% Marshall dekk munu ALDREI rata aftur undir framendann á bílnum!

Semsagt - ef hjólastillingin nægir ekki og ef hann rásar jafnt til beggja hliða þá gæti lausnin legið í dekkjunum. Það er ekkert eðlilegt að þýskur fákur haldist ekki þokkalega á veginum þó hann sé á 17".


Hef nákvæmlega sömu sögu af segja af sömu dekkjategund, reyndar á Benz. Var á marshall/kumho, þegar ég keypti hann og var alveg ömurlegt að keyra, smellti Dunlop SP9000 undir og hann alveg stökkbreyttist bílinn, mæli með þeim dekkjum, dekk hafa oft miklu meira að segja heldur en maður gerir sér grein fyrir.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/