er með e46 318 sjálfskiptann.
það stendur á skiptingunni að þetta sé líftíðar olía en við vitum það allir að ekkert endist að eilífu.
bíllinn er keyrður 160.000 og mér finnst kominn tími til að skipta á greyinu.
því spyr ég hvaða olíu aðra en orginal er hægt að nota?
er með ATF LT 71141 sem ég veit að fer á e39 og fleiri, get ég ekki notað þennan vökva?
Edit:
Var að komast að því að þetta er einhver GM skipting í þessu framleidd í frakklandi af öllum stöðum!!
Samkvæmt því sem ég hef fundið á netinu á annað hvort að vera OEM olía á þessu eða Texaco eitthvað.
Veit einhver hvort Esso ATF LT 71141 gangi á þetta? ég aulaðist til að tappa af henni án þess að hugsa og setja Esso olíuna á. er reyndar ekki búinn að setja í gang ennþá.
