bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

hikst í bmw X5!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=32055
Page 1 of 1

Author:  Roark85 [ Tue 23. Sep 2008 11:55 ]
Post subject:  hikst í bmw X5!

sælir,

var að fá mer x5 í staðin fyrir ónýta þristinn minn.

en það er smá vandamál!

þegar eg er að keyra á beinum vegi eða upp brekku á ca 70-100km hraða kemur smá sona hnökur i velina a jöfnu 2-3 sec millibili þegar hann er á sona 1500-2000 rpm og svo stundum þegar eg er að koma ur hringtorgi eða er að auka hraðan frá 20-40km þá byrjar bíllinn að hiksta (eða hoppa) í sona 3 sec! böggandi dæmi sko,buin að lata hann 2 svar i tölvu og ekkert fynst að,annars er hann bara mjög goður!

Gætu þetta verið háspennukeflin að gefa sig?

Kv Halli :)

Author:  Axel Jóhann [ Tue 23. Sep 2008 12:17 ]
Post subject: 

Já, myndi allavega láta athuga þau. :)

Author:  Einari [ Tue 23. Sep 2008 22:04 ]
Post subject: 

lýsir sér dálítið eins og vacumleki... :)

Author:  Angelic0- [ Wed 24. Sep 2008 00:50 ]
Post subject: 

Crank sensor, Cam sensorar :?:

Mér finnst það hljóma þannig...

Author:  Hannsi [ Wed 24. Sep 2008 07:20 ]
Post subject: 

Var með sama vanda í 540 skifti um cam sensor og allt varð sem nýtt :)

Author:  Roark85 [ Wed 24. Sep 2008 11:56 ]
Post subject: 

hvað er cam sensor? og hvar gæti þessi vacum leki verið?

Author:  Hannsi [ Wed 24. Sep 2008 12:10 ]
Post subject: 

Roark85 wrote:
hvað er cam sensor? og hvar gæti þessi vacum leki verið?

Ef það er vacuum leki sem um ræðir er líklegast að það sé farinn lítill gúmmí hosa sem er undir innspýtingunni. Sú hosa á það til að morkan fljótt og gatast eða rifna í sundur.

Cam sensor er staðsettur á heddinu

Image
Og eru á báðum heddum (einn í '98 E39 og eldra)

Author:  aronjarl [ Wed 24. Sep 2008 14:00 ]
Post subject: 

ef um villu á sveifarásskynjara, knastásskynjara eða háspennukefli væri að ræða þá mundi það koma fram í aflestri af bílnum.

Gæti mögulega verið að þetta sé flaskt loft
Gæti mögulega verið eitthvað tengt skiptinguni


Láttu lesa af honum í B&L ef þú ert ekki búin af því.

Author:  Roark85 [ Wed 24. Sep 2008 16:32 ]
Post subject: 

eg er nokkuð viss um að þetta tengist ekki skiftinguni hun er alveg su smoothasta sem eg hef átt i öllum minum bimmum,lét lesa af honum í tb og þar com eikkað veð vacum en þeir heldu að það tengdist einhverju a milli tanks og vélar,meira veit eg ekki!

Author:  Roark85 [ Wed 24. Sep 2008 16:34 ]
Post subject: 

illa böggandi ves sko!

Author:  Einarsss [ Wed 24. Sep 2008 16:35 ]
Post subject: 

eru ekki B&L með mun nákvæmari aflestur í tölvunni þar? Myndi tjekka á þeim

Author:  Alpina [ Wed 24. Sep 2008 16:41 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
eru ekki B&L með mun nákvæmari aflestur í tölvunni þar? Myndi tjekka á þeim


Segi það,,,,,

Hvað er verið að fá sér eitthvað dollaragrín ,, og efast svo um umboðið..

neinei ,, best að fara á kraftinn og ATHUGA BILANAGREININGUNA ÞAR :shock:

sorry,,,,, en alveg mega pappakassa fnykur af þessu

Author:  Lindemann [ Wed 24. Sep 2008 18:07 ]
Post subject: 

aronjarl wrote:
ef um villu á sveifarásskynjara, knastásskynjara eða háspennukefli væri að ræða þá mundi það koma fram í aflestri af bílnum.

Gæti mögulega verið að þetta sé flaskt loft
Gæti mögulega verið eitthvað tengt skiptinguni


Láttu lesa af honum í B&L ef þú ert ekki búin af því.


koma fram "stored" villur í aflestri hjá TB?

Author:  íbbi_ [ Wed 24. Sep 2008 19:43 ]
Post subject: 

mér heffur alls ekki reynst það sambærilegt að láta lesa af bmw hjá B&L eða annarstaðar,

farðu í B&L :wink:

Author:  Angelic0- [ Wed 24. Sep 2008 21:35 ]
Post subject: 

B&L, aflestartölvan í TB skrökvar stundum....

Ekki að ég ætli að nöldra neitt yfir þjónustunni þar... mjög liðlegir og fínir :!:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/