Sælt veri fólkið,
Ég er búinn að koma mér í smá vandræði. Þegar ég keypti Hr. E36 328i Sport þá var í honum viðvörunarljós vegna ABS. Eigandinn sagðist hafa skipt um hægra megin að aftan og vildi meina að það væri þá líklegast hinn sem var kappútt.
Ég skipti um hinn (v. aftan) i sumar en þetta lagaðist ekki. Ég lét því lesa af bílnum nýlega og kom þar fram að hægra megin að aftan var ekki að virka. Ég tók þetta í sundur í dag og sé að skynjarinn er nýr en mig grunar að hjólið á "hubinum" sé ekki lagi. Þ.e. það sem skynjarinn notar til að "telja" hraðann á hjólinu.
Vandamálið:
Ég þarf að fara með bílinn í skoðun á miðvikudagsmorgun. Til að skipta um þetta hjól þarf ég að taka allt í sundur, öxul af, nýja legu o.s.frv. og ég treysti mér ekki til þess að ná því á morgun því mér vantar líka nokkur verkfæri og varahlutina.
Spurningin:
Get ég einhvernveginn tekið ABS-ið og spólvarnarljósið úr sambandi og losnað við viðvörunarljósin í mælaborðinu? Veit þetta er skítamix, en mig langar að fá skoðun á bílinn og redda mér svo góðum varahlutum á réttu verði til að gera þetta vel í rólegheitum.
Veit hvar ABS relay-ið er en þori varla að rífa það bara út + ég efast um að mælaborðsljósin fari úr við það.
Segið mér ykkar hugmyndir.


