Þarf að skipta um drif í 525i, en það virðast vera öðruvísi festingar á drifinu í 518 og 520 bílnum mínum. Ég var að spá eru þetta þá ekki stóru og litlu drifin og í hvaða bílum breytast þau? þeas, við 520 og 525 eða ?
Og líka, er þetta ekki nema kannski 2-3 tíma verk fyrir vanann bílabrasara á bílalyftu með öll verkfæri sem maður þarf?
Bara svona athuga áður en ég byrja svo ég geti gefið mér tíma í þetta eftir vinnu einhverntímann.
Kv. Axel Jóhann.




