bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

túrbovandræði í 320d
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=31209
Page 1 of 1

Author:  HelgiP [ Sun 10. Aug 2008 15:40 ]
Post subject:  túrbovandræði í 320d

sælir vantar smá info er með e46 320d og túrbinan er ekki að virka veit ekki hvort hún sé farinn því bílinn gengur fínt og ekkert aukahljóð engin reykjamökkur eða neitt frá bílnum en samt hauga kraftlaus og lét tb lesan í tölvu og þá kom boost pressure control pressure too low hvað er hægt að gera?og hafið þið sem eigið diesel bmw lent í þessu líka og hvað var að?

Author:  Alpina [ Sun 10. Aug 2008 15:46 ]
Post subject: 

ÞETTA er án vafa B&L tech info

Author:  Turbo- [ Sun 10. Aug 2008 15:52 ]
Post subject: 

vinnufélagi minn lennti í því að túrbínan fór
lét kistufell skipta um, síðan var alltaf eitthvað af, og það fór held ég hátt í milljón hjá b&l að finna hvað var að og laga það
reikninurinn var minnir mig um 972þús frá b&l af því að kistufell tóku spíssana úr og þeir stífluðust og enginn grunaði þá, svo að ekki fara í kistufell

Author:  Alpina [ Sun 10. Aug 2008 16:19 ]
Post subject: 

Turbo- wrote:
vinnufélagi minn lennti í því að túrbínan fór
lét kistufell skipta um, síðan var alltaf eitthvað af, og það fór held ég hátt í milljón hjá b&l að finna hvað var að og laga það
reikninurinn var minnir mig um 972þús frá b&l af því að kistufell tóku spíssana úr og þeir stífluðust og enginn grunaði þá, svo að ekki fara í kistufell


Þetta eru hörð ummæli

Author:  Turbo- [ Sun 10. Aug 2008 19:02 ]
Post subject: 

allavegana, kistufell kostaði vinnufélaga minn rúmlega milljón í aukakostnað sem hefði ekki þurft að vera, svo neituðu þeir að sjálfsögðu öllu og vildu ekkert gera fyrr en lögfræðingur var kominn í málið þá borguðu þeir spissana fyrir hann

Author:  Dóri- [ Sun 10. Aug 2008 20:28 ]
Post subject: 

Bara úr með túrbínuna og láttu tékka á henni, ég lenti í því reyndar að sprengja hosu sem kemur úr intercoolernum, þá blés hann reyndar kolsvörtum reik.

Author:  JonHrafn [ Wed 29. Oct 2008 12:19 ]
Post subject: 

Búinn að komast að því hvað veldur?

Author:  Axel Jóhann [ Wed 29. Oct 2008 12:21 ]
Post subject: 

Þeir í kistufelli er bara TOPP GAURAR. Myndi aðeins bíða með að segja svona lagað.

Author:  íbbi_ [ Wed 29. Oct 2008 19:54 ]
Post subject: 

já toppgaurar, í öll þau skipti sem ég hef verslað þar hef ég fengið reikninga í engu samhengi við það sem áætlað var, og verktímin sömuleiðis líka, dettur varla til hugar að versla þar aftur nema ég komist ekki hjá því,

turbo vandræði í 320d/330d eru ekkert óeðlileg, flestir sem ég þekki sem hafa átt svona bíla í einhvern tíma hafa þurft að skipta út annahvort bínuni eða einhverju turbokerfinu tengt

Author:  hjá [ Thu 30. Oct 2008 00:30 ]
Post subject: 

hvort kistufellið skilst að þetta niðri í bæ sé ekki það sama og uppá höfða

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/