Page 1 of 1
Losa trissuhjól af sveifarás.

Posted:
Wed 23. Jul 2008 21:56
by JonHrafn
Erum búnir að vera reyna losa afgangin af hjólinu af það er ekki að ganga. Er ekki einhver hérna sem hefur þurft að losa þetta hjól af?
Ekki beint góð ending í þessu hjóli , 3,5 ár/ 114þús km . Gúmmíið splundraðist.

Posted:
Wed 23. Jul 2008 22:59
by Einarsss
hvernig vél er þetta?

Posted:
Wed 23. Jul 2008 23:12
by JonHrafn
Já hvernig væri að taka það fram

320d 11/2004 . M47
Okkur sýnist að það þurfi eitthvað special tool til að halda á móti snúningnum meðan við reynum að losa boltan. Hersluvélin á ekki roð í þetta.

Posted:
Thu 24. Jul 2008 00:35
by gstuning
er trissuhjólið fest með einum bolta framann á og ekki mörgum littlum?

Posted:
Thu 24. Jul 2008 02:11
by íbbi_
þú þarft afdráttarkló, fæst í bílanaust t.d

Posted:
Thu 24. Jul 2008 03:18
by BMW_Owner
íbbi_ wrote:þú þarft afdráttarkló, fæst í bílanaust t.d
ha? er hann ekki að tala um eitthvað til að halda á móti snúningnum?þegar hann losar boltann?
hvernig notarðu afdráttarkló í það?
annars ef ég svara spurningunni í byrjun þá hefur dugað hjá mér að setja bílinn í gír og síðan snöggt högg þá "á"það að losna nema þetta sé kannski haugriðgað sem ég geri ekki ráð fyrir í 2004 árg af bíl


Posted:
Thu 24. Jul 2008 07:13
by JonHrafn
Sjálfskiptur þannig að gírinn virkar ekki. Já trissan er fest með einum bolta í miðjunni.

Posted:
Thu 24. Jul 2008 07:31
by gstuning
JonHrafn wrote:Sjálfskiptur þannig að gírinn virkar ekki. Já trissan er fest með einum bolta í miðjunni.
þá vantar þig um 10mm stöng sem er slidað í gegnum gat farþega meginn að aftann frá , samt framann á vélinni og er rennt í demparann með tíma merkingunum, það er til að losa þetta sem og stilla TDC á sveifarásnum þegar er verið að setja vélina samann.

Posted:
Thu 24. Jul 2008 11:43
by JonHrafn
Bjallaði inn í TB og þeir sögðu að lofthersluvél ætti að ná þessu drasli af. Þannig að kvikindið fer bara á verkstæði.

Posted:
Fri 25. Jul 2008 01:22
by Taxi
Heyrði frá bifvélavirkja fyrir mörgum árum að setja topp á boltann, skaft á toppinn og svo vatnsrör á skaftið, koma þessu þannig fyrir að skaftið sláist annaðhvort í grindarbita eða niður í gólf, setjast svo inn og starta bílnum örstutt, þetta ætti að losa flesta trissubolta ?

Posted:
Fri 25. Jul 2008 07:27
by JonHrafn
Taxi wrote:Heyrði frá bifvélavirkja fyrir mörgum árum að setja topp á boltann, skaft á toppinn og svo vatnsrör á skaftið, koma þessu þannig fyrir að skaftið sláist annaðhvort í grindarbita eða niður í gólf, setjast svo inn og starta bílnum örstutt, þetta ætti að losa flesta trissubolta ?
Menn nota þetta sem last resort, og við prufum það, virkaði ekki

. Bíllin er allavega komin á verkstæði.

Posted:
Fri 25. Jul 2008 15:59
by JonHrafn
Boltin losnaði loksins eftir að vera gasaður í rautt og kom þá af með hersluvél. Þetta átti ekki að detta af það er á hreinu.