Sælir félagar.
Þannig er mál við vexti að ég var að prufa 320d 2003 módel og kunni ég mjög vel við hann fyrir utan smá gangtruflanir. Þær lýsa sér þannig að þegar maður er á jafnri inngjöf í kringum 1.500 rpm og niður í 1.000 rpm þá er eins og vélin sé alltaf að slá á móti, það er eins og ég sé alltaf að slá af olíugjöfinni. Gerist þetta með ca. sekúndu millibili og því er eins og bíllinn hiksti.
Vona að þið náið hvert ég er að fara.
Það ber ekkert á þessu á inngjöf eða á jafnri inngjöf yfir 1.600 rpm.
Bílinn er ekinn 96 þúsund km og er með 100% þjónustubók.
Hefur einhver lent í svipuðu með sinn disel BMW?

