Page 1 of 2

Vökvastýrisdæla M30

PostPosted: Mon 02. Jun 2008 23:43
by srr
Sælir,

Ég er að fara græja vökvastýrismálin í E28 verkefninu mínu....
Nú var ég auðvitað með M20 mótor ofan í og þar af leiðandi var M20 vökvast. dæla með tveimur slöngum, ein inn og ein út.
M30 vökvast.dælan sem var á m30b35 er með þrjár slöngur.....

Hvað geri ég við þriðja útganginn ?? Eða þarf ég að finna mér M30 vökvast.dælu sem er bara með einn inn- og einn útgang?

PostPosted: Mon 02. Jun 2008 23:59
by sh4rk
Er þessi dæla úr E32 því að þá er einn út gangurinn fyrir hleðslujafnarann.
Lenti í þessu sama veseni með E23 bílinn hjá mér og þá er best bara að setja útganginn fyrir hleðslujafnarann aftur uppí forðabúrið

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 00:01
by srr
sh4rk wrote:Er þessi dæla úr E32 því að þá er einn út gangurinn fyrir hleðslujafnarann.
Lenti í þessu sama veseni með E23 bílinn hjá mér og þá er best bara að setja útganginn fyrir hleðslujafnarann aftur uppí forðabúrið

Er ekki til E23/E24/E28 vökvast.dæla fyrir M30, sem væri þá bara með þessa tvo venjulega útganga?

Og jám, þessi m30b35 hjá mér er úr e32 sem hefur þá væntanlega verið með hleðslujafnara....

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 00:08
by sh4rk
Jú jú það er allveg til vökvastýrisdæla fyrir E23/E24 og E28.
Ég gæti átt eina auka en er ekki viss samt

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 00:16
by srr
Endilega tékkaðu :)
Væri alveg til í að klára þetta svona.....eins og á morgun! ;)

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 00:19
by sh4rk
Ef að ég á hana til þá er hun í geimslu rétt hjá Húsafelli og ég er fluttur í bæinn þannig að það yrði þá kannski um helgina sem ég gæti tékkað á því

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 00:22
by srr
Hmmm.....

Hvað með Sæmund Stefánsson ???? :)

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 00:24
by sh4rk
bara spyrja

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 13:12
by srr
Ein spurning....

Get ég tekið nippilinn úr dælunni minni sem fer í hleðslujafnarakerfið....og sett bolta/tappa í staðinn?

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:10
by sh4rk
Nei þá sprengiru dæluna einföld lausn er bara að setja bara þessa lögn aftur uppí biðu ef að þú átt tengið

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 20:03
by Axel Jóhann
Er vonlaust að notast við M20 dæluna?

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 20:22
by birkire
Já búa bara til hringrás.. slöngu úr LAD útgangnum sem fer svo í vökvastýris forðabúrið ! 8)

www.reddumthvi.is

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 20:40
by sh4rk
Nákvæmlega eins og ég gerði bara hringrás á LAD kerfið uppí forðabúr

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 21:58
by srr
Haldiði að ég hafi ekki bara fundið E24/E28 dælu upp í hillu hjá mér :lol:
Merkt árgerð 1985....Mig grunar að hún sé úr HM-463, 525i E28 bílnum hans Valla / Björgvins...sem ég reif í fyrra.

Best að möndla henni í EINN TVEIR OG BINGÓ! 8) 8)

PostPosted: Tue 03. Jun 2008 23:07
by sh4rk
Sko kallinn